Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins bs.
Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa, er byggðasamlag sem starfar á grundvelli stofnsamnings frá 15. febrúar 1988, með síðari breytingum. Tilgangur þess er að annast sorpeyðingu fyrir stofnaðila þess.
Eftirtalin sveitarfélög eiga aðild að byggðasamlaginu: Reykjavíkurborg, Garðabær, Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Sveitarfélagið Álftanes.
Stjórn byggðasamlagsins er skipuð einum fulltrúa frá hverju aðildarsveitar-félagi og skal hann vera fulltrúi í sveitarstjórn eða framkvæmdastjóri sveitarfélags. Varamenn eru tilnefndir með sama hætti.
Kjörtímabil stjórnar er til tveggja ára frá upphafi kjörtímabils sveitarstjórna. Formennska skiptist á milli aðildarfélaganna. Stjórnarmenn fara með hlutfallslegt atkvæðavægi í samræmi við íbúafjölda hvers sveitarfélags.
Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins bs. hefur aðsetur að Gufunesvegi.
Borgarstjórn kaus Oddnýju Sturludóttur í stjórnina 24. júní 2010 og Einar Örn Benediktsson til vara.
Stjórnin er svo skipuð:
Oddný Sturludóttir, Reykjavík
Margrét Gauja Magnúsdóttir, Hafnarfjarðarbær
Hafsteinn Karlsson, Kópavogsbær
Páll Hilmarsson, Garðabær, formaður
Bjarni Torfi Álfþórsson, Seltjarnarnesbær
Herdís Sigurjónsdóttir, Mosfellsbær
Hjördís Jóna Gísladóttir, Sveitarfélagið Álftanes