Forsætisnefnd
Eftirtaldir eiga sæti í forsætisnefnd:
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Björk Vilhelmsdóttir
Sóley Tómasdóttir
Áheyrnarfulltrúar eru:
Dagur B. Eggertsson
Einar Örn Benediktsson
Forseti og varaforsetar borgarstjórnar skipa forsætisnefnd og stýrir forseti starfi nefndarinnar. Nú á framboðslisti sem fær kjörinn fulltrúa í borgarstjórn ekki fulltrúa í forsætisnefnd skv. 1. málsl. og skal hann þá tilnefna borgarfulltrúa úr sínum röðum sem áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd með málfrelsi og tillögurétt.
Forsætisnefnd heldur að jafnaði fundi tvisvar í mánuði. Boða skal til aukafunda eftir þörfum. Forseti boðar til funda forsætisnefndar og ákveður dagskrá í samráði við framkvæmdastjóra nefndarinnar.
Verkefni forsætisnefndar eru sem hér segir:
1. Skipuleggur starf borgarstjórnar.
2. Hefur umsjón með alþjóðasamstarfi borgarstjórnar.
3. Fjallar um tillögur að breytingum á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar og samþykktum fyrir einstakar nefndir.
4. Fjallar um álitamál varðandi málsmeðferð í stjórnsýslu og stjórnkerfi Reykjavíkurborgar sem til hennar er vísað.
5. Setur reglur um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa, sbr. einnig III. kafla.
6. Ákveður um móttökur á vegum borgarinnar.
7. Fjallar um önnur þau mál sem forseti leggur fyrir hana eða aðrir nefndarmenn, áheyrnarfulltrúar eða skrifstofustjóri borgarstjórnar óskar að ræða.
Skrifstofa borgarstjórnar annast umsýslu fyrir forsætisnefnd, þ.m.t. ritun fundargerða, og er skrifstofustjóri borgarstjórnar framkvæmdastjóri forsætisnefndar.