Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Strætó bs.

Strætó er byggðasamlag um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem starfar á grundvelli stofnsamnings frá 7. maí 2001.

Aðild eiga: Reykjavíkurborg, Garðabær, Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Sveitarfélagið Álftanes.

Stjórn byggðasamlagsins er skipuð einum fulltrúa og einum til vara frá hverju aðildarsveitarfélagi og skal hann vera fulltrúi í sveitarstjórn eða framkvæmdastjóri sveitarfélags. Varamenn eru tilnefndir með sama hætti.

Borgarstjórn kaus Einar Örn Benediktsson í stjórn 24. júní 2010 og til vara Björk Vilhelmsdóttir.

Formennska skiptist milli aðildarsveitarfélaganna. Kjörtímabil stjórnar er hið sama og kjörtímabil sveitarstjórnar. Aðsetur Strætó bs. er að Þönglabakka 4.

Stjórnin er svo skipuð:

Einar Örn Benediktsson, Reykjavík
Hjálmar Hjálmarsson, Kópavogsbær
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Hafnarfjarðarbær, formaður
Stefán Snær Konráðsson, Garðabær
Hafsteinn Pálsson, Mosfellsbær
Sigrún Edda Jónsdóttir, Seltjarnarnesbær
Kjartan Örn Sigurðsson, Sveitarfélagið Álftanes