Borgarráð
Borgarstjórn kaus í borgarráð 21. júní 2011:
Borgarráð starfar skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 Það var stofnað með samþykkt um stjórn bæjarmálefna Reykjavíkur nr. 73/1932. Í IV. kafla samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007 eru ákvæði um verkefni borgarráðs, sbr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga. Jafnframt er vísað til 3. mgr. 44. gr. laganna um embættisafgreiðslur skrifstofustjóra borgarstjórnar, sbr. viðauka 2.1 við samþykktina.
Borgarráð fer, ásamt borgarstjóra, með framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar og fjármálastjórn, að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin. Það hefur umsjón með stjórnsýslu Reykjavíkurborgar almennt og fjárstjórn hennar sérstaklega, undirbýr fjárhagsáætlanir og sér um að ársreikningar Reykjavíkurborgar séu samdir reglum samkvæmt. Borgarráði er heimil fullnaðarákvörðun mála sem eigi varða verulega fjárhag borgarsjóðs eða stofnana hans, enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins eða við borgarstjóra um ákvörðunina.
Í borgarráði sitja sjö borgarfulltrúar kjörnir af borgarstjórn til eins árs í senn og jafnmargir til vara. Borgarstjóri situr fundi borgarráðs, en hann hefur þar ekki atkvæðisrétt nema hann sé sérstaklega í það kjörinn. Flokkur sem fulltrúa á í borgarstjórn, en ekki í borgarráði, má tilnefna borgarfulltrúa til að sitja fundi borgarráðs með málfrelsi og tillögurétt.
Reglulegir fundir borgarráðs eru haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur á fimmtudögum og hefjast kl. 9.00.