Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Framkvæmda- og eignaráð

Á borgarstjórnarfundi 15. júní 2010 var samþykkt að borgarráð fari með verkefni framkvæmda- og eignaráðs til næstu áramóta. Á sama fundi var kosið í borgarráð:

Kjörnir: Til vara:
Dagur B. Eggertsson, formaður Einar Örn Benediktsson
Óttarr Ólafur Proppé Karl Sigurðsson
Elsa Hrafnhildur Yeoman Björk Vilhelmsdóttir
Oddný Sturludóttir Hjálmar Sveinsson
Hanna Birna Kristjánsdóttir Kjartan Magnússon 
Júlíus Vífill Ingvarsson  Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 
Sóley Tómasdóttir  Þorleifur Gunnlaugsson 

Framkvæmda- og eignaráð starfar í umboði borgarráðs skv. samþykkt samþykktri í borgarstjórn 2. október 2007 með síðari breytingum, sbr. samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007 og eftir því sem lög mæla fyrir um.

Framkvæmda- og eignaráð mótar stefnu um kaup, sölu og rekstur eigna Reykjavíkurborgar. Það hefur eftirlit með rekstri og því að samþykktum og stefnumörkun sé fylgt, er fagsviðum Reykjavíkurborgar til samráðs um forgangsröðun nýframkvæmda og vinnur þriggja ára áætlun um nýframkvæmdir, kaup og sölu eigna borgarinnar í samráði við fagsvið. Jafnframt samþykkir ráðið endanlega hönnun og útfærslu nýrra mannvirkja og yfirfer framkvæmdina að henni lokinni og staðfestir leigu, þjónustu- og rekstrarsamninga sem framkvæmda- og eignaráð gerir. Þá gerir ráðið tillögur til borgarráðs að reglum um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar og að reglum um kaup og sölu Reykjavíkurborgar á fasteignum.

Framkvæmda- og eignaráð afgreiðir, án staðfestingar borgarráðs, beiðnir um aðilaskipti að leigulóðum og byggingarrétti sem þegar hefur verið úthlutað, skv. heimild í 2. mgr. 44. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/2003, sbr. lög nr. 74/2003 og viðauka 1.4 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007.

Ráðið er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og borgarstjórnar.

Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er heimilt að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi ráðsins, með málfrelsi og tillögurétt, eigi hann ekki fulltrúa í ráðinu.

Framkvæmda- og eignaráð heldur að jafnaði fundi annan og fjórða mánudag hvers mánaðar kl. 13.30 - 16 að Borgartúni 10-12 og hefur þar jafnframt aðsetur. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Ráðið skal halda a.m.k. einn fund á ári opinn almenningi.