Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Íþrótta- og tómstundaráð

Borgarstjórn kaus í íþrótta- og tómstundaráð 20. september 2011:

Kjörnir: Til vara:
Eva Einarsdóttir, formaður Einar Örn Benediktsson
Eva Baldursdóttir Ragnar Hansson
Stefán Benediktsson Arna Garðarsdóttir
Karl Sigurðsson Bjarni Þór Sigurðsson
Kjartan Magnússon Björn Gíslason
Geir Sveinsson

Jarþrúður Ásmundsdóttir

Marta Guðjónsdóttir 

Óttarr Guðlaugsson
Áheyrnarfulltrúi VG  
Hermann Valsson Drífa Baldursdóttir


Íþrótta- og tómstundaráð starfar í umboði borgarráðs. Borgarstjórn staðfesti samþykkt fyrir ráðið 20. september 2011, samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007 og eftir því sem lög mæla fyrir um.

Íþrótta- og tómstundaráð mótar stefnu á sviði íþrótta- og tómstundamála Reykjavíkurborgar og gerir tillögur sem varða verksvið þess til borgarráðs. Jafnframt hefur íþrótta- og tómstundaráð eftirlit með að samþykktum þess og stefnumörkun sé fylgt.

Íþrótta- og tómstundaráð vinnur að eflingu íþrótta- og tómstundastarfs í Reykjavík, hefur samvinnu við þá aðila sem um slík mál fjalla og við félög sem hafa íþrótta- og tómstundamál á stefnuskrá og mótar stefnu um samstarf við þá aðila.

Ráðið gerir tillögur til borgarráðs að gerð og staðsetningu nýrra íþróttamannvirkja og félagsmiðstöðva ásamt tillögum um rekstur þeirra eftir því sem við á. Það hefur jafnframt eftirlit með rekstri íþrótta- og æskulýðsmannvirkja sem eru í eigu Reykjavíkurborgar og borgarráð hefur veitt styrk til og jafnframt þeim mannvirkjum öðrum sem borgarráð hefur veitt styrk til.

Þá stuðlar það að eflingu hollrar tómstundaiðju meðal almennings í samstarfi við samtök borgarbúa svo og í samstarfi við aðrar borgarstofnanir.
Jafnframt skipuleggur ráðið dagskrá 17. júní hátíðarhaldanna í Reykjavík ár hvert.

Íþrótta- og tómstundaráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna fulltrúa og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi.
Kjörtímabil þess er hið sama og borgarstjórnar.

Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er heimilt að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi íþrótta- og tómstundaráðs, með málfrelsi og tillögurétt, eigi hann þar ekki fulltrúa.

Aðsetur íþrótta- og tómstundaráðs er að Borgartúni 12-14 og heldur ráðið að jafnaði fundi þar annan og fjórða föstudag hvers mánaðar, kl. 11.00. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Ráðið heldur a.m.k. einn fund á ári opinn almenningi.