Menningar- og ferðamálaráð
Borgarstjórn kaus í menningar- og ferðamálaráð 15. júní 2010:
| Kjörnir: |
Til vara: |
| Einar Örn Benediktsson, formaður |
Gaukur Úlfarsson |
| Harpa Elísa Þórsdóttir |
Hugleikur Dagsson |
| Eva Baldursdóttir |
Guðrún Jóna Jónsdóttir (frá 18.8.'11) |
| Stefán Benediktsson |
Ósk Vilhjálmsdóttir (frá 18.8.'11) |
| Magnús Þór Gylfason (frá 18.10.'11) |
Jón Karl Ólafsson (frá 19.4.'11) |
| Áslaug María Friðriksdóttir |
Jarþrúður Ásmundsdóttir |
| Þór Steinarsson (frá 1.2.'11) |
Davíð Stefánsson (frá 1.2.'11) |
Menningar- og ferðamálaráð starfar í umboði borgarráðs skv. samþykkt fyrir ráðið, staðfestri í borgarstjórn 5. apríl 2005, samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007 og eftir því sem lög mæla fyrir um.
Ráðið mótar stefnu í menningar-, ferða- og markaðsmálum, tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs varðandi valdsvið þess og hefur eftirlit með að samþykktum og stefnumörkun þess sé fylgt.
Menningar- og ferðamálaráð fer með hlutverk stjórnar Borgarbókasafns Reykjavíkur skv. ákvæðum laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997 og stjórnar Borgarskjalasafns Reykjavíkur skv. ákvæðum laga um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985, sbr. reglugerð nr. 283/1994. Þá fer ráðið með hlutverk byggingarnefndar skv. lögum um húsafriðun nr. 104/2001, að fengnum umsögnum skipulagsráðs um einstök mál. Sjá einnig ákvæði laga um náttúruvernd nr. 44/1999 og þjóðminjalaga nr. 107/2001.
Ráðið gerir tillögur til borgarráðs varðandi samninga við Leikfélag Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listahátíð í Reykjavík og jafnframt um styrki og starfslaun til menningarstarfs í borginni, tilnefnir fulltrúa í dómnefnd um bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og útnefnir borgarlistamann. Það fylgist með útgáfu örnefnaskrár og merkingu fornminja og gerir tillögu til borgarráðs um staðsetningu hvers konar myndverka á almannafæri. Þá fer ráðið með málefni Höfuðborgarstofu í samræmi við ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar, vinnur að því að efla og samræma kynningar og markaðsmál Reykjavíkur til að styrkja stöðu höfuðborgarinnar í alþjóðlegri samkeppni á sviði ferðamála og vinnur að undirbúningi viðburða og hátíða í Reykjavík á sviði ferðamála.
Menningar- og ferðamálaráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgafulltrúi. Ráðið skiptir að öðru leyti með sér verkum. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og borgarstjórnar.
Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er heimilt að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi með málfrelsi og tillögurétt, eigi hann þar ekki fulltrúa.
Þá er Bandalagi íslenskra listamanna heimilt að tilnefna tvo áheyrnarfulltrúa listamanna ásamt varamönnum til setu í ráðinu með málfrelsi og tillögurétt.
Ráðið getur haldið opna fundi eftir því sem við á. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Aðsetur ráðsins er að Aðalstræti 2 og heldur ráðið að jafnaði fundi þar annan og fjórða mánudag hvers mánaðar, kl. 13.00.
Safnráð Listasafns Reykjavíkur starfar á grundvelli VI. kafla samþykktar fyrir Listasafn Reykjavíkur, sem staðfest var af borgarráði 7. júlí 2005. Menningar- og ferðamálaráð skipar fjóra menn í safnráðið til tveggja ára í senn, en hlutverk þess er m.a. að vera safnstjóra til ráðuneytis og stuðnings, auk þess sem það tilnefnir tvo úr sínum röðum í innkaupanefnd Listasafnsins.