Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Grunnskólanemar fá viðurkenningu fyrir fallegt mál

Á annað hundrað grunnskólanemar í Reykjavík á aldrinum 8-15 ára tóku á degi íslenskrar tungu við íslenskuverðlaunum skóla- og frístundaráðs við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Verndari verðlaunanna, frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti afhenti verðlaunin ásamt Oddnýju Sturludóttur formanni skóla- og frístundaráðs og Mörtu Guðjónsdóttur formanni nefndar um verðlaunin.
Vigdís Finnbogadóttir sagði m.a.  í ávarpi sínu að henni þætti afar vænt um að fá að afhenda þessi verðlaun. "Tungumálið er hljóðfæri hugans og með því komum við orðum að því sem skiptir okkur mestu", sagði Vigdís.

Reykvískir grunnskólanemar sem tóku við verðlaunum í dag hafa skarað fram úr á ýmsa vegu í íslenskunámi, verið skapandi skrifum, munnlegri tjáningu og framsögn. Þá voru meðal verðlaunahafa tvítyngdir grunnskólanemar sem sýnt miklar framfarir í íslenskunámi. Allir verðlaunahafar fengu til eignar veglegan verðlaunagrip, þröstinn góða, sem hannaður er af Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur. Við athöfnina í dag söng kór Grandaskóla og skólahljómsveit Austurbæjar lék fyrir gesti.  

Dagskrá var einnig í mörgum leik- og grunnskólum í tilefni dagsins. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti skóla í Fellahverfi, en þar eru mörg börn með annað móðurmál en íslensku. Hún heimsótti  m.a. leikskólann Holt og Fellaskóla og kynnti sér þar fjölmenningarlegt skólastarf.  

Viltu verðlauna starfsfólk leikskólanna?

Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs vegna leikskólastarfs. Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, kennarar, ömmur og afar, borgarstarfsmenn, skólar, aðrar stofnanir og samtök.

Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Sex verkefni sem þykja skara fram úr verða verðlaunuð.

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs verða afhent við hátíðlega athöfn í janúar og felast í viðurkenningarskjali og verðlaunagrip sem leikskólinn fær til eignar.

Sjá tilnefningarblað 2011.
Sjá auglýsingu um verðlaunin. Sjá auglýsingu um verðlaunin á ensku., Sjá auglýsingu um verðlaunin á pólsku.

Sjá meira um hvatningarverðlaun fyrir leikskólastarf

Skóla- og frístundaráð

Borgarstjórn kaus í skóla- og frístundaráð 20. september 2011:

Kjörnir: Til vara:
Oddný Sturludóttir, formaður Erna Ástþórsdóttir
Hilmar Sigurðsson Pétur Magnússon
Óttarr Ólafur Proppé Ingi Bogi Bogason
Eva Einarsdóttir Kristín Erna Arnardóttir 
Kjartan Magnússon Geir Sveinsson (frá 18.10.'11)
Marta Guðjónsdóttir (frá 18.10.'11) Rúna Malmquist
Líf Magneudóttir Sigríður Pétursdóttir

Samþykkt fyrir skóla- og frístundaráð.

Skóla- og frístundaráð starfar í umboði borgarráðs í samræmi við samþykkt borgarráðs frá 17. ágúst 2006, samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007 og eftir því sem lög mæla fyrir um, sbr. einnig heimild í 1. mgr. 41. gr. sveitarstjórnarlaga.

Skóla- og frístundaráð mótar stefnu í menntamálum á vegum Reykjavíkurborgar tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs hvað varðar verksvið þess. Jafnframt hefur ráðið eftirlit með að samþykktum og stefnumörkun borgarinnar í menntamálum sé fylgt og fylgist með gæðum skólastarfs. Þá fer ráðið með önnur þau verkefni sem borgarráð ákveður. Skóla- og frístundaráð fer með verkefni skólanefndar skv. grunnskólalögum nr. 66/1995.

Skóla- og frístundaráð gerir tillögur til borgarráðs um stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum.
Ráðið hefur eftirlit með að framfylgt sé lögum um grunnskóla og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Það gætir þess að grunnskólar á vegum borgarinnar búi við fullnægjandi húsnæði til skólastarfs og að annar aðbúnaður sé fyrir hendi. Þá gerir það tillögur um byggingu nýrra grunnskóla eða viðbyggingar við eldri skóla.
Skóla- og frístundaráð fylgir eftir framkvæmd 37. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996 varðandi stofnun og byggingu framhaldsskóla.
Þá hefur ráðið eftirlit með starfsemi skólahljómsveita og fullorðinsfræðslu á vegum Reykjavíkurborgar og hefur eftirlit með starfi einkarekinna skóla sem styrktir eru af borginni, þ.e. grunnskólum, tónlistarskólum og myndlistarskólum.

Skóla- og frístundaráð ræður skólastjóra grunnskóla skv. 23. gr. grunnskólalaga nr. 66/1995, án staðfestingar borgarráðs, samkvæmt heimild í 2. mgr. 44. gr. sveitarstjórnarlaga og viðauka 1.2 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007.

Skóla- og frístundaráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og borgarstjórnar.

Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er heimilt skv. 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi skóla- og frístundaráðs með málfrelsi og tillögurétt, eigi hann þar ekki fulltrúa.

Aðsetur skóla- og frístundaráðs er að Borgartúni 12-14 og heldur ráðið að jafnaði fundi þar, annan og fjórða miðvikudag hvers mánaðar, kl. 10.00. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Ráðið getur haldið fundi opna almenningi.