Velferðarráð
Borgarstjórn kaus í velferðarráð 15. júní 2010.
Velferðarráð starfar í umboði borgarráðs skv. samþykkt fyrir ráðið, staðfestri í borgarstjórn 5. apríl 2005, með breytingum 7. júní s.á., samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007 og eftir því sem lög mæla fyrir um, sbr. einnig heimild í 1. mgr. 41. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Velferðarráð fer með verkefni félagsmálanefndar skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997. Jafnframt fer velferðarráð með verkefni húsnæðisnefndar skv. lögum um húsnæðismál nr. 44/1998.
Velferðarráð skal móta stefnu í velferðarþjónustu, s.s. félags-, heilbrigðis-, húsnæðis- og öldrunarmálum, taka ákvarðanir og gera tillögur til borgarráðs um verksvið þess. Jafnframt hefur ráðið eftirlit með að samþykktum og stefnumörkun sé fylgt. Þá fer ráðið með önnur þau verkefni sem borgarráð ákveður.
Velferðarráð gerir tillögur til borgarráðs um stefnumörkun á sviði félagsþjónustu og húsnæðismála í Reykjavík, fylgir eftir framkvæmd laga um málefni aldraðra nr. 125/1999, laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992, barnalaga nr. 76/2003 og laga um ættleiðingar nr. 130/1999 og gerir tillögur til borgarráðs um stefnu og framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar, sbr. 9. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, í samráði við barnaverndarnefnd.
Velferðarráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Ráðið kýs sér varaformann og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og borgarstjórnar.
Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er heimilt skv. 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi velferðarráðs með málfrelsi og tillögurétt, eigi hann þar ekki fulltrúa.
Á grundvelli heimildar í 6. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga starfar sérstök áfrýjunarnefnd velferðarráðs, sbr. 3. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 13. gr. samþykktar fyrir ráðið. Áfrýjunarnefndin er skipuð þremur fulltrúum, kosnum af velferðarráði til loka kjörtímabils borgarstjórnar.
Aðsetur velferðarráðs er að Borgartúni 12-14 og heldur ráðið að jafnaði fundi þar fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar kl. 13.30. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Ráðið skal halda árlega a.m.k. einn fund sem er opinn almenningi.