Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skrifstofa borgarstjórnar

Ráðhúsið austurhlið

Ráðhúsi Reykjavíkur
Tjarnargötu 11
101 Reykjavík
s. 411 4700
fax 411 4799

Skrifstofa borgarstjórnar fer með umsýslu fyrir borgarstjórn, borgarráð og forsætisnefnd, sem og ýmsar aðrar nefndir. Í því felst móttaka og meðferð gagna, undirbúningur funda, s.s. gerð og útsending dagskrár, framkvæmd funda, þ.m.t. ritun fundargerða og ráðgjöf til formanns og annarra fundarmanna, frágangur gagna og tilkynningar um afgreiðslu mála, og birting fundargerða og upplýsingagjöf til almennings.

Skrifstofan heldur utan um þjónustu við borgarfulltrúa og aðra kjörna fulltrúa í nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar, þ.m.t. lögfræðilega ráðgjöf, fræðslu og umsjón með kjörum þeirra og starfsaðstöðu. Þá veitir skrifstofan nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar, sem og starfsmönnum þeirra, ýmsa ráðgjöf, s.s. lögfræðilega ráðgjöf á sviði fundarskapa og stjórnkerfis Reykjavíkurborgar.

Miðlæg umsjón styrkjamála hjá Reykjavíkurborg er á hendi skrifstofu borgarstjórnar, en í henni felst m.a. auglýsing eftir styrkumsóknum og úthlutun umsókna til viðkomandi fagráða til afgreiðslu. Umsjón með framkvæmd almennra kosninga í Reykjavík er á verksviði skrifstofu borgarstjórnar, þ.m.t. frágangur kjörskrár, undirbúningur kjörstaða, öflun starfsfólks, framkvæmd kjörfunda og talning atkvæða.

Embætti lögfræðings borgarstjórnar er á skrifstofu borgarstjórnar. Verkefni þess eru m.a. meðferð beiðna um endurupptöku mála hjá Reykjavíkurborg, leiðbeiningar til almennings um endurupptökuheimildir og kæruleiðir, auk þess sem lögfræðingur borgarstjórnar sinnir gerð lögfræðilegra álitsgerða fyrir borgarstjórn, borgarráð, forsætisnefnd og aðrar nefndir og ráð borgarinnar, sem og borgarfulltrúa. Þá er lögfræðingur borgarstjórnar staðgengill skrifstofustjóra borgarstjórnar.

Starfsmenn:

Friðrik Bridde, ritari borgarfulltrúa
netfang: fridrik.bridde@reykjavik.is 

 

Helga B. Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar

netfang: helga.laxdal@reykjavik.is

 

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, deildarfulltrúi

netfang: hildur.l.viggosdottir@reykjavik.is

Ingibjörg S. Gunnarsdóttir, deildarfulltrúi
netfang: ingibjorg.s.gunnarsdottir@reykjavik.is

Jónína H. Björgvinsdóttir, deildarstjóri
netfang: jonina.helga.bjorgvinsdottir@reykjavik.is

Sigríður S. Júlíusdóttir, deildarfulltrúi
netfang: sigridur.s.juliusdottir@reykjavik.is

Úlfhildur J. Þórarinsdóttir, deildarfulltrúi
netfang: ulfhildur.thorarinsdottir@reykjavik.is