Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Bláfjallafólkvangur, stjórn skíðasvæða

Friðlýsing fólkvangs í Bláfjöllum tók gildi með auglýsingu nr. 97/1973, sbr. nú ákvæði 3. og 55. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd.  Með auglýsingu þessari lýstu aðliggjandi sveitarfélög yfir stofnun fólkvangs á Bláfjallasvæðinu sem staðfest var af náttúruverndarráði.

Samkomulag er milli neðangreindra sveitarfélaga um rekstur skíðasvæðanna og Bláfjallafólkvangs og hefur Náttúruvernd á það fallist, sbr. 55. gr. náttúruverndarlaga nr. 44/1999.

Sveitarfélög með aðild að samstarfinu eru:  Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Hafnarfjörður, Garðabær, Sandgerði, Grindavík, Sveitarfélagið Garður, Sveitarfélagið Vogar, Sveitarfélagið Álftanes, Reykjanesbær og Mosfellsbær.

Borgarráð staðfesti samþykkt fyrir stjórnina 4. nóvember 2003.
Aðsetur nefndarinnar er að Bæjarhálsi 1.

Borgarráð kaus 8. júlí 2010 Diljá Ámundadóttur í stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, Bláfjallafólkvangs. Til vara var kosin Eva Baldursdóttir.



Skipurit