Forvarnarnefnd
Borgarráð samþykkti á fundi 10. febrúar 2004 að skipuð yrði forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar skipuð þremur kjörnum fulltrúum. Auk þess var ákveðið að velferðarsvið og íþrótta- og tómstundasvið myndu tilnefna einn fulltrúa hvert til að starfa með nefndinni.
Forvarnarnefnd ber m.a. ábyrgð á að móta heildstæða forvarnarstefnu fyrir Reykjavíkurborg og skilgreina markmið og leiðir til að ná árangri og mælikvarða á árangur forvarnarstarfs hjá Reykjavíkurborg.