Kirkjubyggingarsjóður Reykjavíkurborgar
Borgarstjórn staðfesti samþykkt fyrir Kirkjubyggingarsjóð 7. janúar 2003.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja með framlögum byggingu kirkna og safnaðarheimila sókna í Reykjavík með það takmark fyrir augum að þær eignist hver sína kirkju svo fljótt sem verða má.
Stjórn sjóðsins skal hafa forgöngu um öflun fjár til sjóðsins, varðveita hann og gera rökstuddar tillögur til borgarstjórnar um styrkveitingar úr honum.
Stjórnin er skipuð þremur mönnum og eru tveir þeirra kjörnir af héraðsnefndum Reykjavíkurprófastsdæma og einn af borgarráði til fjögurra ára í senn. Fulltrúi Reykjavíkurborgar gegnir formennsku í stjórninni.
Borgarráð kaus 10. mars 2011 Karl Sigurðsson formann stjórnar kirkjubyggingarsjóðs til loka kjörtímabilsins. Aðrir í stjórn eru Gísli Jónasson og Jóhannes Pálmason.