Kjarasamningar
Kjarasamningar; samninganefnd, launanefnd, kjaranefnd
Samninganefnd Reykjavíkurborgar er skipuð af borgarstjóra. Borgarráð fól borgarstjóra með samþykkt sinni hinn 28. febrúar 1989 að annast kjarasamningsgerð fyrir hönd Reykjavíkurborgar með skírskotun í 3. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.
Borgarstjóri skipaði eftirtalda í nefndina 23. janúar 2008:
| Skipaðir: |
Ráðgjafar nefndarinnar: |
| Hallur Páll Jónsson, form. |
Birgir Björn Sigurjónsson |
| Ingunn Gísladóttir, varaform. |
Gunnar Eydal |
| Árni R. Stefánsson |
Anna Borgþórsdóttir |
| Berglind Ólafsdóttir |
Kristín Þóra Harðardóttir |
| Guðfinnur Þór Newman |
Þórhildur Líndal |
| Örn Sigurðsson |
|
Fulltrúar samninganefndar ásamt fulltrúum stofnana og fyrirtækja borgarinnar sitja í samstarfsnefndum við hin ýmsu stéttarfélög og fara þær með mál sem upp kunna að koma á milli samninga. Starfskjaranefnd (samstarfsnefnd) var fyrst stofnuð vegna Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar með samþykkt borgarráðs 19. desember 1947.
Samningsaðilar Reykjavíkurborgar eru um 30 stéttarfélög.
Launanefnd sveitarfélaganna fer með samningsumboð Reykjavíkurborgar gagnvart Kennarasambandi Íslands vegna grunnskóla og tónlistarskóla og einnig gagnvart Félagi leikskólakennara.
Af hálfu borgarinnar eiga þar sæti:
Kjaranefnd ákveður laun æðstu stjórnenda Reykjavíkurborgar en fylgist jafnframt með kjaraákvörðunum sviðsstjóra. Kjaranefnd skal fylgjast með ákvörðunum kjaranefndar ríkisins varðandi þau embætti sem höfð eru til viðmiðunar. Kjör skv. ákvörðun kjaranefndar eru heildarkjör og skal ekki vera um frekari greiðslur að ræða. Borgarstjóri skipaði eftirtalda í kjaranefnd:
Birgir Björn Sigurjónsson, formaður
Gunnar Eydal
Kristbjörg Stephensen