Listahátíð
Listahátíð; fulltrúaráð, stjórn
Samþykkt fyrir Listahátíð í Reykjavík var staðfest af fulltrúaráði Listahátíðar 20. júní 1997.
Aðild að Listahátíð eiga menntamálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, ýmis samtök listamanna og menningarstofnanir. Aðilar tilnefna einn mann hver í fulltrúaráð en auk þess eiga menntamálaráðherra og borgarstjóri þar sæti og skiptast þeir á um formennsku, tvö ár í senn.
Í stjórn eiga sæti þrír menn; fulltrúi menntamálaráðuneytis, fulltrúi Reykjavíkurborgar og einn sem fulltrúaráðið kýs til tveggja ára í senn.
Sigurjón Kjartansson var tilnefndur í stjórn Listahátíðar af Reykjavíkurborg til tveggja ára 12. október 2010.