Reykjanesfólkvangur
Á fundi undirbúningsnefndar að stofnun fólkvangs á Reykjanesi 12. febrúar 1975 var samþykkt að Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Hafnarfjörður, Grindavík, Garðabær, Selvogshreppur, Keflavík og Njarðvíkurhreppur (tvö síðastnefndu sveitarfélögin eru nú sameinuð í Reykjanesbæ) skyldu vera aðilar að fólkvangi á Reykjanesi, sbr. nú ákvæði 3. og 55. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999. Borgarráð samþykkti stofnun fólkvangsins 21. janúar 1975.
Stjórnin er skipuð einum fulltrúa frá hverju þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að fólkvanginum. Borgarráð kaus 1. júlí 2010 Sverri Bollason í stjórnina til loka kjörtímabilsins, til vara S. Björn Blöndal.