Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Samstarfssjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar

Borgarráð samþykkti 20. júlí 1999 að gerast aðili að samstarfssjóði Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar. Sjóðurinn starfar skv. reglum frá 18. júní 1999 og eru bæjarstjórnir Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar í Færeyjum aðilar að honum.

Tilgangur sjóðsins er að efla skilning og samvinnu milli kjörinna fulltrúa og íbúa í Nuuk, Reykjavík og Þórshöfn og styðja ýmsa starfsemi í þessu skyni, fyrst og fremst á sviði menningarmála.

Stjórn sjóðsins er skipuð borgarstjórum höfuðborganna þriggja ásamt tveimur kjörnum fulltrúum frá hverri borg. Af hálfu Reykjavíkurborgar sitja í sjóðsstjórninni, auk borgarstjóra, Dagur B. Eggertsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir (frá 24.6.'10). Aðsetur sjóðsins er í Ráðhúsi Reykjavíkur.



Skipurit