Músíktilraunir 2008



Upplýsingar

Markmið Músíktilrauna er:

- Að veita ungum íslenskum hljómsveitum og tónlistarfólki tækifæri á að koma tónlist sinni á framfæri.
- Að skapa vettvang fyrir unnendur tónlistar til að geta fylgst með ungum og efnilegum hljómsveitum og tónlistarfólki.
- Að stuðla að því að fjölmiðlar skapi umræðu og kynningu í samfélaginu á ungu og upprennandi tónlistarfólki.

Dómnefnd

Árni Matthíasson, Morgunblaðið
Steinþór Helgi Arnsteinsson, Fréttablaðið
Ragnheiður Eiríksdóttir, 24 stundir
Hildur Maral Hamíðsdóttir, Monitor
Hildur Guðný Þórhallsdóttir, FÍH
Arnar Eggert Thoroddsen, Rás 2
Kristján Kristjánsson, fulltrúi fólksins

Reglur

Skráning fer engöngu fram á rafrænan hátt á netinu og 50 fyrstu sem greiða þátttökugjald komast sjálkrafa í Músíktilraunir. Þátttökugjald er 6.000 kr. Á hverju undankvöldi skal hljómsveit flytja tvö frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 10 mínútur. Á úrslitakvöldi flytur hver hljómsveit þrjú frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 12 - 15 mínútur.

Músíktilraunir eru ætlaðar ungu fólki á aldrinum 13 - 25 ára.

Hljómsveit má ekki hafa gefið út efni sitt á geisladisk, plötu eða hljóðsnældu. Talað er um útgáfu þegar efni er selt og markaðsett skipulega fyrir almenning. Ekki er um útgáfu að ræða þegar efni er eingöngu notað sem gjafir, þrátt fyrir að það sé á geisladisk, plötu eða hljóðsnældu, eða eftir að hljómsveit hefur eingöngu komið út á safnplötu. Sökum þess hversu auðvelt er að útbúa og dreifa tónlist í gegnum netið telst það ekki til útgáfu og er því leyfilegt.

Framkvæmdarnefnd Músíktilrauna 2008 áskilur sér þann rétt að hafna hljómsveitum þátttöku ef:

- Sýnishorn það sem berst á MP3 stenst ekki tónlistarlegar lágmarkskröfur sem gerðar eru til keppninnar.
- Þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir fyrir tilskilinn tíma
- Af öðrum ástæðum.

Ath. notkun áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð og verði þátttakendur og gestir uppvísir um notkun þeirra er þeim tafarlaust vísað frá.

Athugið að á Músíktilraunum 2008 eru fjöldatakmarkanir þ.e. þær 50 fyrstu hljómsveitir sem skrá sig og greiða þátttökugjald komast að.

Ef eitthvað kemur upp á, t.d. ef að hljómsveit ætlar að hætta við, þá verður að tilkynna starfsmönnum Tónabæjar eða Hins Hússins það strax.

ATH! Þátttökugjald verður ekki endurgreitt.