Félagsstarf fyrir fólk með þroskahömlun

40+ sem er opið félagsstarf einu sinni í viku. (Sjá nánar krækju hér til vinstri).

Menningarklúbbur sem starfar einu sinni í viku frá september til maí og er lokaður klúbbur, sem þarf að skrá sig í að hausti. (Sjá nánar krækju hér til vinstri).

Meginmarkmið félagsstarfsins er að stofna, styrkja og viðhalda, velmetnum félagslegum hlutverkum fyrir fólk sem er vanmetið, með því að nota menningarlega velmetnar leiðir eins og mögulegt er. Eins að styðja hinn fatlaða til sjálfstæðis, sem einstakling og í samskiptum við aðra.

Í starfinu er lögð áhersla á þrjá meginþætti; efling sjálfstrausts, efling sjálfstæðis og eflingar samkenndar með öðrum.


Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is