Músíktilraunir 2008



Músíktilraunafréttir

Músíktilraunir 2009 í startholunum|25.02.2009
Músíktilraunir 2009 Músíktilraunir verða nú haldnar í 27 skipti í mars og apríl. Fyrirkomulag tilraunanna verða nú með örlítið breyttu sniði því að nú í ár verða undankvöldin 4 í stað 5. Undankvöldin verða haldin í Íslensku Óperunni 27.-30. mars en úrslitakvöldið verður síðan í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, laugardaginn 4. apríl. Músíktilraunirnar eru fyrir aldurshópinn 13-25 ára og hefur þátttakan verið framar vonum síðustu ár. Skráning hefst hér á vef Músíktilrauna föstudaginn 27. febrúar.


Músíktilraunir 2008 í Sjónvarpinu|23.10.2008
Sérstakur þáttur um Músiktilraunir 2008 verður á dagskrá Sjónvarpsins miðvikudaginn 12. nóvember kl 23:05 og endursýndur helgina á eftir. Músíktilraunir 2008 voru frábærar, leikgleðin og krafturinn skein úr hverju andliti og umgjörðin skildi fólk eftir agndofa. Unglingar og ungt fólk í blóma lífsins að brillera er sönn vítamínsprauta í skammdeginu. Músik er menning. Sjáumst í Sjónvarpinu 12. nóvember.


Sigurvegarar Músíktilrauna 2008|15.03.2008
Besti hljómborðsleikarinn/forritarinn - Þórður Sigurðsson - Blæti
Besti trommarinn - Hrafnkell Örn Guðjónsson - Agent Fresco
Besti bassaleikarinn - Borgþór Jónsson - Agent Fresco
Besti gítarleikarinn - Þórarinn Guðnason - Agent Fresco
Besti söngvarinn/rapparinn - Dagur Sigurðsson - Happy funeral
Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku - Óskar Axel Óskarsson og Karen Pálsdóttir

Hljómsveit fólksins - The Nellies

3. sæti - Endless dark
2. sæti - Óskar Axel og Karen Páls
Sigurvegarar Músíktilrauna 2008 - Agent Fresco


Úrslitakvöld Músíktilrauna|14.03.2008
Gulli Úrslitakvöld Músíktilrauna fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, laugardaginn 15. mars 2008 kl. 17:00. Fram koma hljómsveitirnar Furry Strangers, Johnny Computer, Hinir, Endless dark, Ástarkári, Happy Funeral, Óskar Axel og Karen Páls, Blæti, The Nellies og Agent Fresco.

Shogun, sigurbandið frá því í fyrra, mun opna dagskrána en keppnin verður send út í beinni útsendingu á Rás 2.

Veitt verða verðlaun fyrir besta hljómborðsleikarann/forritarann, besta trommarann, besta bassaleikarann, besta gítarleikarann, besta söngvarann/rapparann og veitt verður viðurkenning fyrir besta íslenska textann. Hljómsveit fólksins verður valin í símakosningu og að sjálfsögðu verða veitt verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sætið.

Forsala miða hefst í Hinu húsinu á hádegi og flyst í Listasafn Reykjavíkur þegar húsið opnar kl. 16:00.



Fimmta og síðasta undankvöld Músíktilrauna|14.03.2008

Fimmta og síðasta undankvöldi Músíktilrauna fór fram í Austurbæ í kvöld. Troðfullur salur kaus hljómsveitina Agent Fresco áfram í úrslit en dómnefndin ákvað að senda Johnny computer áfram til þess að keppa við átta aðrar hljómsveitir á úrslitakvöldi Músíktilrauna.

Úrslitakvöld Músíktilrauna fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, laugardaginn 15. mars kl. 17:00. Miðasala hefst í Hinu húsinu kl. 12:00, húsið opnar kl. 16:00 og þá flyst miðasalan í Listasafnið. Keppnin hefst stundvíslega kl. 17:00 og verður send út í beinni útsendingu á Rás 2.



Fjórða undankvöldið|13.03.2008
Happy Funeral

Fjórða og næstsíðasta undankvöld Músíktilrauna fór fram í Austurbæ fimmtudagskvöldið 13. mars. Flest atkvæði áhorfenda hlaut hljómsveitin Blæti en dómnefndin ákvað að senda hljómsveitina Happy funeral áfram í úrslit.

Fimmta og síðasta undankvöldið fer fram í Austurbæ á föstudagskvöldið. Miðasala hefst í Austurbæ kl. 13:00, húsið opnar kl. 18:00 og keppnin hefst stundvíslega kl. 19:00.



Þriðja undankvöld Músíktilrauna|12.03.2008

Nú er það ljóst að hljómsveitirnar The Nellies frá Mosfellsbæ og Ástarkári frá Hafnarfirði eru komnar áfram í úrslit. Þriðja undankvöld Músíktilrauna fór fram í Austurbæ í kvöld.

The Nellies og Ástarkári hafa því bæst í hóp hinna sem taka þátt í úrslitum Músíktilrauna í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi á laugardaginn.



Annað undankvöld Músíktilrauna|11.03.2008
Endless dark

Í kvöld voru það hljómsveitirnar Endless dark og Furry strangers sem komust áfram í úrslit þegar keppni á öðru undankvöldi Músíktilrauna 2008 fór fram í Austurbæ.

Eftir spennandi keppni fór hljómsveitin Endless dark áfram á atkvæðum áhorfenda í sal en dómnefndin ákvað að senda Furry strangers í úrslit.

Því má bæta við að Gulli (Gunnlaugur Arnar Sigurðsson) er "opinber" ljósmyndari Músíktilrauna 2008. Daglega setjum við inn myndir sem Gulli tekur á undankvöldunum hingað á heimasíðuna og þær eru einnig til sýnis á risaskjám í anddyri Austurbæjar.



Verðlaun á Músíktilraunum 2008|11.03.2008
Hinir Verðlaunin á Músíktilraunum í ár eru ekki af verri endanum. Hljóðfæraverslanir, upptökuver og fyrirtæki tengd tónlistariðnaðinum sýna mikinn velvilja og gefa vegleg verðlaun.

Veitt eru verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti, efnilegustu hljóðfæraleikarana, viðurkenning fyrir besta íslenska textann og hljómsveit fólksins verður valin af áhorfendum í símakosningu.

Meira


Fyrsta undankvöld Músíktilrauna|10.03.2008
Óskar Axel Það var ansi troðið í Austurbæ á fyrsta undankvöldi Músíktilrauna Tónabæjar og Hins Hússins 2008 sem fram fór mánudagskvöldið 10. mars.

10 hljómsveitir spreyttu sig en hljómsveitirnar Hinir og Óskar Axel og Karen Páls tryggðu sér sæti á úrslitakvöldinu. Hljómsveitin Hinir komst áfram á atkvæðum áhorfenda í sal. Dómnefndin hafði reyndar sjálf ákveðið að senda þá hljómsveit áfram en þurfti að breyta á síðustu stundu og valdi Óskar Axel og Kareni Páls til áframhaldandi þátttöku.

Hinir og Óskar Axel og Karen Páls keppa því við átta önnur bönd á úrslitakvöldinu sem fer fram í Listarsafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi laugardaginn 15. mars.

Næsta undankvöld Músíktilrauna verður á þriðjudagskvöldið í Austurbæ. Miðasala hefst kl. 13:00, húsið opnar klukkan 18:00 og fyrsta hljómsveitin stígur svo á stokk klukkan 19:00. Áhorfendur senda síðan eina hljómsveit í úrslit en dómnefnd velur hina. Það er því um að gera að mæta og styðja sína hljómsveit til sigurs og reynsla dagsins í dag segir okkur að það er um að gera að mæta tímanlega og tryggja sér miða.



Icelandair|07.03.2008
Icelandair Icelandair er dyggur stuðningsaðili Músíktilrauna ÍTR og hefur verið það síðastliðin þrjú ár. Auk þess að styrkja verkefnið myndarlega þá verðlaunar Icelandair sigurhljómsveitina með flugmiðum til Evrópu.

Styrkur Icelandair er hluti af dyggum stuðningi fyrirtækisins við íslenskt tónlistarlíf, en þeir hafa einnig styrkt tónlistarhátíðir eins og Airwaves og sett á fót Loftbrú sem styrkir íslenskar hljómsveitir til tónleikahalds erlendis.


Teljið í - Músíktilraunir hefjast á mánudaginn!|07.03.2008
Músíktilraunir 2008 Músíktilraunir Tónabæjar og Hins hússins hefjast á mánudagskvöldið kemur, mánudaginn 10. mars.

Undankvöldin fara fram í Austurbæ 10. - 14. mars og hefjast kl. 19:00. Miðasala á keppnina fer fram á keppnisstað frá kl. 13:00 og miðaverð er 800 kr.

Úrslitakvöldið fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, 15. mars kl. 17:00. Miðaverð á úrslitakvöldið er 1.000 kr. Úrslitin verða send út í beinni á Rás 2.


Hljómsveit vísað úr keppni|05.03.2008
DJ flugvél og geimskip Í reglum Músiktilrauna stendur:
Hljómsveit má ekki hafa gefið út efni sitt á geisladisk, plötu eða hljóðsnældu. Talað er um útgáfu þegar efni er selt og markaðsett skipulega fyrir almenning. Ekki er um útgáfu að ræða þegar efni er eingöngu notað sem gjafir, þrátt fyrir að það sé á geisladisk, plötu eða hljóðsnældu, eða eftir að hljómsveit hefur eingöngu komið út á safnplötu. Sökum þess hversu auðvelt er að útbúa og dreifa tónlist í gegnum netið telst það ekki til útgáfu og er því leyfilegt.

Á þessum forsendum hefur hljómsveitinni DJ Flugvélar og Geimskip verið vísað frá keppni þar sem hún hefur gefið út efni hjá Melar Records og selt og dreift efni í 12 Tónum. Þetta er gert í fullri sátt og samkomulagi við hljómsveitarmeðlim sem einfaldlega gerði sér ekki grein fyrir reglum Músiktilrauna.



Rás 2|05.03.2008
Rás 2

Í gegnum tíðina hafa Músíktilraunir átt gott samstarf við Rás 2. Ítarleg umfjöllun fer fram á Rás 2 frá því skráning hefst og þartil keppni lýkur. Það ætti því ekki að fara framhjá landsmönnum að Músíktilraunir standa yfir.

Kynnar á Músíktilraunum hafa alltaf verið dagskrárgerðarmenn Rásar tvö. Fyrst var það Snorri Sturluson sem gegndi því hlutverki en síðustu árin hefur það verið hlutverk Ólafs Páls Gunnarssonar að kynna unga og efnilega tónlistarmenn á svið.

Í ár hefur þátturinn Lög unga fólksins verið með ítarlega umfjöllun um keppnina og hafa þeir leikið efni frá Músíktilraunum fyrri ára auk þess að gefa hljómsveitunum sem keppa í ár góðan gaum.

Rás 2 kemur til með að senda út beint frá úrslitakvöldinu í Listasafni Reykjavíkur, laugardaginn 15. mars kl. 17:00 - 22:00. Áheyrendur geta tekið þátt í símakosningu og valið Hljómsveit fólksins með því að hringja í rétt númer eða senda SMS.



Dómnefnd|27.02.2008
Nobo Dómnefnd Músíktilrauna 2008 skipa:

Árni Matthíasson, Morgunblaðið
Steinþór Helgi Arnsteinsson, Fréttablaðið
Ragnheiður Eiríksdóttir, 24 stundir
Hildur Maral Hamíðsdóttir, Monitor
Hildur Guðný Þórhallsdóttir, FÍH
Arnar Eggert Thoroddsen, Rás 2
Kristján Kristjánsson, fulltrúi fólksins


Skráningu lokið|25.02.2008
Vyð Skráningu í Músíktilraunir 2008 er lokið með fullri skráningu. 50 hljómsveitir koma til með að etja kappi vikuna 10. - 15. mars næstkomandi. Undankvöldin fara fram í Austurbæ 10. - 14. mars en úrslitakvöldið verður í Hafnarhúsinu í Listasafni Reykjavíkur laugardaginn 15. mars.


Skráning vel á veg komin|14.02.2008
Soðin skinka 35 hljómsveitir hafa skráð sig til þátttöku í Músíktilraunum og greitt staðfestingargjald þegar þetta er skrifað. Nú fer því hver að verða síðastur að skrá sig því aðeins 50 bönd komast að.


Skráning hafin|11.02.2008
Shogun Skráning fyrir Músíktilraunir 2008 er hafin hér á vefnum í dag 11. febrúar og lýkur 25. febrúar. Í fyrra fylltist í þau 50 pláss sem í boði voru á nokkrum dögum.

Hver hljómsveit þarf að skila inn lagi á mp3 formi, mynd í fínum gæðum og greiða 6000 króna þáttökugjald. Skráning telst ekki gild fyrr en þátttökugjaldið hefur verið greitt.

Hægt er að fá allar frekari upplýsingar hjá starfsfólki Tónabæjar og Hins Hússins og aðstoða þau við skráningu ef eitthvað er óljóst. Einnig bendum við á netfangið musiktilraunir@itr.is.


Hljómsveitir landsins takið eftir|08.02.2008
Músíktilraunir 2008 Þá er komið að því að Músiktilraunir 2008 fari af stað. Keppnina þekkir næstum hvert mannsbarn sem einhvern tíman hefur lagt eyru við hlustir á íslenskri tónlist því varla fyrirfinnst sá íslenski tónlistarmaður sem ekki hefur komið nálægt Músiktilraunum einhvern tíman á lífsleiðinni.


Músíktilraunir 2008|08.02.2008
Músíktilraunir 2008 Músíktilraunir Tónabæjar og Hins hússins fara fram 10. - 15. mars næstkomandi. Undankvöldin 10. - 14. mars í Austurbæ og úrslitakvöldið 15. mars í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.