05.03.2008
Rás 2
Í gegnum tíðina hafa Músíktilraunir átt gott samstarf við Rás 2. Ítarleg umfjöllun fer fram á Rás 2 frá því skráning hefst og þartil keppni lýkur. Það ætti því ekki að fara framhjá landsmönnum að Músíktilraunir standa yfir.
Kynnar á Músíktilraunum hafa alltaf verið dagskrárgerðarmenn Rásar tvö. Fyrst var það Snorri Sturluson sem gegndi því hlutverki en síðustu árin hefur það verið hlutverk Ólafs Páls Gunnarssonar að kynna unga og efnilega tónlistarmenn á svið.
Í ár hefur þátturinn Lög unga fólksins verið með ítarlega umfjöllun um keppnina og hafa þeir leikið efni frá Músíktilraunum fyrri ára auk þess að gefa hljómsveitunum sem keppa í ár góðan gaum.
Rás 2 kemur til með að senda út beint frá úrslitakvöldinu í Listasafni Reykjavíkur, laugardaginn 15. mars kl. 17:00 - 22:00. Áheyrendur geta tekið þátt í símakosningu og valið Hljómsveit fólksins með því að hringja í rétt númer eða senda SMS.