Músíktilraunir 2008



10.03.2008

Fyrsta undankvöld Músíktilrauna

Óskar AxelÞað var ansi troðið í Austurbæ á fyrsta undankvöldi Músíktilrauna Tónabæjar og Hins Hússins 2008 sem fram fór mánudagskvöldið 10. mars.

10 hljómsveitir spreyttu sig en hljómsveitirnar Hinir og Óskar Axel og Karen Páls tryggðu sér sæti á úrslitakvöldinu. Hljómsveitin Hinir komst áfram á atkvæðum áhorfenda í sal. Dómnefndin hafði reyndar sjálf ákveðið að senda þá hljómsveit áfram en þurfti að breyta á síðustu stundu og valdi Óskar Axel og Kareni Páls til áframhaldandi þátttöku.

Hinir og Óskar Axel og Karen Páls keppa því við átta önnur bönd á úrslitakvöldinu sem fer fram í Listarsafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi laugardaginn 15. mars.

Næsta undankvöld Músíktilrauna verður á þriðjudagskvöldið í Austurbæ. Miðasala hefst kl. 13:00, húsið opnar klukkan 18:00 og fyrsta hljómsveitin stígur svo á stokk klukkan 19:00. Áhorfendur senda síðan eina hljómsveit í úrslit en dómnefnd velur hina. Það er því um að gera að mæta og styðja sína hljómsveit til sigurs og reynsla dagsins í dag segir okkur að það er um að gera að mæta tímanlega og tryggja sér miða.