Músíktilraunir 2008



11.03.2008

Verðlaun á Músíktilraunum 2008

HinirVerðlaunin á Músíktilraunum í ár eru ekki af verri endanum. Hljóðfæraverslanir, upptökuver og fyrirtæki tengd tónlistariðnaðinum sýna mikinn velvilja og gefa vegleg verðlaun.

Veitt eru verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti, efnilegustu hljóðfæraleikarana, viðurkenning fyrir besta íslenska textann og hljómsveit fólksins verður valin af áhorfendum í símakosningu.

Verðlaun á Músiktilraunum 2008


1. sæti
? 20 hljóðverstímar í hljóðveri Sigur Rósar, Sundlauginni, ásamt hljóðmanni
? M-Box 2 Mini upptökutæki ásamt hugbúnaði frá Hljóðfærahúsinu
? 20 þúsund króna úttekt frá 12 Tónum
? Flug út í heim með Icelandair, Tónabæ og Hinu Húsinu
? Spila á 17.júní í Reykjavík
? Spila á Iceland Airwaves hátíðinni

2. sæti
? 20 hljóðverstímar ásamt hljóðmanni í studíó Sýrlandi
? 15 þúsund króna úttekt frá 12 Tónum

3. sæti
? 20 hljóðverstímar ásamt hljóðmanni í Gróðurhúsinu
? 10 þúsund króna úttekt frá 12 Tónum

Efnilegasti gítarleikarinn
? 30 þúsund króna úttekt í Hljóðfæraversluninni Rín

Efnilegasti bassaleikarinn
? 30 þúsund króna úttekt í Tónastöðinni

Efnilegasti hljómborðsleikarinn/forritarinn
? 30 þúsund króna úttekt í Tónastöðinni

Efnilegasti trommuleikarinn
? 30 þúsund króna úttekt í Hljóðfærahúsinu

Efnilegasti söngvarinn/rapparinn
? SHURE Beta 57 hljóðnemi

Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku
? Bókagjöf frá Forlaginu

Hljómsveit fólksins
? Fær að gera myndband með Helgu Kristínu Gunnarsdóttur, grafískum hönnuði og leikstjóra
? Gjöf frá Smekkleysu að verðmæti 20 þúsund krónur