Músíktilraunir 2008



23.10.2008

Músíktilraunir 2008 í Sjónvarpinu

Sérstakur þáttur um Músiktilraunir 2008 verður á dagskrá Sjónvarpsins miðvikudaginn 12. nóvember kl 23:05 og endursýndur helgina á eftir.

Músíktilraunir 2008 voru frábærar, leikgleðin og krafturinn skein úr hverju andliti og umgjörðin skildi fólk eftir agndofa. Unglingar og ungt fólk í blóma lífsins að brillera er sönn vítamínsprauta í skammdeginu. Músik er menning.

Sjáumst í Sjónvarpinu 12. nóvember.