25.02.2009
Músíktilraunir 2009 í startholunum
Gróðurhús íslenskrar tónlistarsköpunar, Músíktilraunir 2009 í startholunum.
Músíktilraunir verða nú haldnar í 27. skipti í mars og apríl. Fyrirkomulag tilraunanna verða nú með örlítið breyttu sniði því að nú í ár verða undankvöldin 4 í stað 5.
Undankvöldin verða haldin í Íslensku Óperunni 27. mars til 30. mars en úrslitakvöldið verður síðan í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, laugardaginn 4. apríl. Músíktilraunirnar eru fyrir aldurshópinn 13-25 ára og hefur þátttakan verið framar vonum síðustu ár.
Meginmarkmið tilraunanna er sem fyrr að veita ungum íslenskum hljómsveitum og tónlistarfólki tækifæri á að koma tónlist sinni á framfæri og að skapa vettvang fyrir unnendur tónlistar til að geta fylgst með ungum og efnilegum hljómsveitum og tónlistarfólki.
Þar sem ÍTR hefur staðið fyrir Músíktilraununum frá upphafi er sú nýlunda í ár að Frístundamiðstöðvar í Reykjavík hafa heimild til að senda einn fulltrúa hver frá sér í keppnina. Er það til að virkja og hvetja ungt fólk í hverfum Reykjavíkur til tónlistariðkunar og þátttöku í Músíktilraununum. Frístundamiðstöðvarnar halda undankeppni til að velja sinn fulltrúa. Þetta útilokar þó ekki þátttöku annarra hljómsveita/tónlistarmanna úr hverfum Reykjavíkur til að sækja um á Músiktilraununum.
Skráning til þátttöku hefst þann 27. febrúar og stendur til 13. mars. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar verður hægt að nálgast á www.musiktilraunir.is, á www.hitthusid.is og í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5.
Skila þarf inn 2 lögum á mp3 formi, mynd af hljómsveit/tónlistarmanni og texta um hljómsveit. Þetta er allt hægt að gera gegnum skráningarblaðið á www.musiktilraunir.is. ATH. Að mynd þarf að vera í góðum stafrænum gæðum. Þátttökugjald er 6.000 kr.
40 hljómsveitir geta tekið þátt á tilraununum í ár. Fagnefnd á vegum Hins Hússins mun síðan velja og samþykkja 40 umsóknir sem standast inntökukröfur tilraunanna. Þeir sem ekki komast inn í ár, fá þátttökugjald endurgreitt. Stúlkur eru eindregið hvattar til þátttöku á Músíktilraununum 2009 til að sýna og sanna að “stelpur rokka”.
Þarftu að taka upp demo fyrir Músíktilraunir?
Hitt Húsið ætlar bjóða hljómsveitum og tónlistarfólki sem ætlar að taka þátt í Músíktilraunum 2009 aðstöðu til að taka upp demo (til að senda inn með umsókninni). Takmarkaður fjöldi daga er í boði. Nánari upplýsingar gefur Orri Einarsson í síma 411 5518 eða orri.einarsson@reykjavik.is. Einnig á www.hitthusid.is
Hvatningarverðlaun Samtóns 2009.
Á íslensku tónlistarverðlaununum 2009 voru aðstandendum Músíktilrauna veitt hvatningarverðlaun Samtóns. Það var okkur mikill heiður og ánægja að taka við slíkri viðurkenningu.