08.02.2008
Hljómsveitir landsins takið eftir
Þá er komið að því að Músiktilraunir 2008 fari af stað. Keppnina þekkir næstum hvert mannsbarn sem einhvern tíman hefur lagt eyru við hlustir á íslenskri tónlist því varla fyrirfinnst sá íslenski tónlistarmaður sem ekki hefur komið nálægt Músiktilraunum einhvern tíman á lífsleiðinni.
Keppnin hóf göngu sína árið 1982 með sigri hljómsveitarinnar Dron, margar hljómsveitir hafa tekið þátt í keppninni og í framhaldi notið mikillar velgengni innanlands sem utan og nægir þar að nefna hljómsveitir á borð við Mínus, Sigur Rós (sem þá hét Bee Spiders), Maus, Kolrassa (síðar Bellatrix), Botnleðja (síðar Silt), XXX Rottweiler, Mammút, Jakobínarína, 200.000 naglbítar og margir fleiri.
Undankeppnir fara fram dagana 10.-14. mars í Austurbæ og úrslit í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi þann 15. mars og verður sú keppni í beinni útsendingu á Rás 2. RÚV mun síðan framleiða sjónvarpsþátt um keppnina sem verður sýndur á vordögum.
50 hljómsveitir komast í undankeppni að þessu sinni og komast síðan 2 áfram á hverju undankvöldi í úrslit.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir sigurhljómsveitina til dæmis inneignir í hljóðfæraverslunum, stúdíótímar og rúsínan í pylsuendanum flugfar með Icelandair á glæsilega tónlistarhátíð sem verður nánar kynnt síðar.
Skráning stendur hefst 11. febrúar og lýkur 25. febrúar á heimasíðunni www.musiktilraunir.is
Nánari upplýsingar fást á netfanginu musiktilraunir@itr.is