08.02.2008
Músíktilraunir 2008
Músíktilraunir Tónabæjar og Hins hússins fara fram 10. - 15. mars næstkomandi. Undankvöldin 10. - 14. mars í Austurbæ og úrslitakvöldið 15. mars í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Skráning fer fram 11. - 25. febrúar á heimasíðu Músíktilrauna, www.musiktilraunir.is. Skráningargjald er 6.000 kr.
Miðasala á keppnina fer fram á keppnisdag á viðkomandi keppnisstað. Miðaverð á undankvöld er 800 kr. en 1.000 kr. á úrslitakvöldið.
Hægt er að senda fyrirspurnir varðandi Músíktilraunir á netfangið musiktilraunir@itr.is.