11.02.2008
Skráning hafin
Skráning fyrir Músíktilraunir 2008 er hafin hér á vefnum í dag 11. febrúar og lýkur 25. febrúar. Í fyrra fylltist í þau 50 pláss sem í boði voru á nokkrum dögum.
Hver hljómsveit þarf að skila inn lagi á mp3 formi, mynd í fínum gæðum og greiða 6000 króna þáttökugjald. Skráning telst ekki gild fyrr en þátttökugjaldið hefur verið greitt.
Hægt er að fá allar frekari upplýsingar hjá starfsfólki Tónabæjar og Hins Hússins og aðstoða þau við skráningu ef eitthvað er óljóst. Einnig bendum við á netfangið musiktilraunir@itr.is.