Músíktilraunir 2008



14.02.2008

Skráning vel á veg komin

Soðin skinka35 hljómsveitir hafa skráð sig til þátttöku í Músíktilraunum og greitt staðfestingargjald þegar þetta er skrifað. Nú fer því hver að verða síðastur að skrá sig því aðeins 50 bönd komast að.

Það eru mörg spennandi og öðruvísi bönd skráð til leiks. Einyrkjar, electro fólk, trip-hopparar og alvöru gamaldags pönk er meðal þess sem boðið verður uppá en þó er að sjálfsögðu svitafýlu rokkið vinsælast.