TÓNLEIKAR FOR A MINOR REFLECTION Á SAFNANÓTT
Á Safnanótt, föstudagskvöldið 10.febrúar, flytur hljómsveitin For a Minor Reflection rafmagnaða tónlist í Viðeyjarstofu. Fjómenningarnir hafa gefið út 3 diska og ferðast um Bandaríkin og Evrópu og flutt tónlist sína fyrir ört vaxandi og ástríðufullan aðdáendahóp.
Safnanæturstrætó verður á ferðinni um alla borg á Safnanótt, öllum gestum að kostnaðarlausu. Leið C fer frá Flókagötu, bílastæðinu við Kjarvalstaði á 20 mínútna fresti; 15 35 og 55 mín yfir heila tímann og verður á Skarfabakka, við brottfararstað ferjunnar 38 58 og 18 mínútur yfir heila tímann.
Áætlaðar eru tvær ferðir til Viðeyjar; um kl.19:45 og kl.20:45 og greiða þarf ferjutoll kr. 1000.-
Tónleikarnir hefjast um kl.21:00 og standa í uþb klukkustund. Enginn aðgangseyrir. Gestir geta notið ljúfra og skemmtilegra veitinga í mat og drykk meðan á tónleikunum stendur.
Ferðir til baka að tónleikum loknum eru áætlaðar um kl.22:15 og kl.22:45. Safnanæturstrætó verður á Sarfabakka á 20 mínútna fresti og gengur til miðnættis.
Nánari upplýsingar um Safnanæturstrætó og aðra viðburði á Vetrarhátíð má finna á vetrarhatid.is
Skoða alla fréttir