List

Heimsþekktir listamenn hafa valið Viðey sem ákjósanlegastan stað fyrir staðsetningu listaverka sinna. Verk Richard Serra og Yoko Ono eru bæði ómetanleg djásn og auka við þá ánægju sem gestir hafa af heimsókn til Viðeyjar. Þess má líka geta að um hríð stóð verk eftir Ólaf Elíasson, Blind Pavillion, á hæsta punkti Sjónarhóls.