Veitingasala

Á daginn er opið kaffihús í Viðeyjarstofu og eins er salurinn á efri hæð Viðeyjarstofu afar vinsæll fyrir ýmis konar samkvæmi og veislur.
Viðeyjarnaust er opið gestum frá 11:30 – 17:00 yfir sumartímann. Þar geta ferðalangar hvílt lúin bein, notið útsýnis og snætt nesti. Við skálann er grillaðstaða og inni salernisaðstaða. Öll útleiga á Viðeyjarnausti á kvöldin eftir lokun er í höndum Eldingar.
Sömuleiðis geta áhugasamir leigt aðstöðu í gamla skólahúsinu, í þorpinu austast í eynni.