Heimsdagur barna í Gerðubergi|06.02.2012
heimsdagur  barna Heimsdagur barna, Magnað myrkur, verður haldinn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og Frístundamiðstöðinni Miðbergi Laugardaginn 11. febrúar 2012 kl. 13-17 Aðgangur ókeypis - allir velkomnir!


Gaman saman í Garðaborg og Nóaborg|08.12.2011
landakort Í leikskólunum Garðaborg Bústaðavegi 81 og Nóaborg Stangarholti 11 verður í vetur boðið til fjölskyldusamverunnar Gaman saman einn laugardag í mánuði. Í Garðaborg hittast pólskar fjölskyldur og í Nóaborg spænskar fjölskyldur en markmiðið er að börn á leikskólaaldri fái tækifæri til að efla móðurmál sitt í samskiptum við önnur börn og fullorðna.


"Integration and immigrant participation" |11.11.2011
fjölmenning Ráðstefnan "Integration and immigrant participation" verður haldin í Rúgbrauðsgerðinni 14. og 15. nóvember. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vef hennar http://vefir.hi.is/integration/


Brjótum múra|19.10.2011
brjótum múra Rauði krossinn á Akranesi, Akraneskaupstaður og fleiri góðir aðilar boða til ráðstefnu í Tónbergi á Akranesi 4. og 5. nóvember n.k. undir yfirskriftinni BRJÓTUM MÚRA! Ráðstefnan er um forsendur, kosti og áskoranir fjölmenningarsamfélaga, en ráðstefnan er liður í samnefndu verkefni sem styrkt er af Progress áætlun Evrópusambandsins. Málefni tengd innflytjendum eru frekar ný í íslenskum veruleika og þróunin hér á landi átti sér stað talsvert síðar en í löndunum í kringum okkur. Þetta geriri okkur kleift að nýta þá þekkingu og reynslu sem safnast hefur og læra af mistökum annarra.


Sumarnámskeið Ísbrúar |25.03.2010
ísland Sjöunda sumarnámskeið Ísbrúar verður haldið 5. og 6. ágúst næstkomandi. Námskeiðið er ætlað kennurum á öllum skólastigum sem kenna íslensku sem annað mál


Málþing 27. apríl kl. 13:00-15:00|15.02.2010
hendur Vörður á lífsleið barna. Málþing um trú og trúarbrögð í uppeldi og menntun verður haldið í Bratta, Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð þriðjudaginn 27. apríl n.k. Dagskrá málþingsins og skráning auglýst síðar en málþingið er opið fyrir alla og aðgangur ókeypis.


Styrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála|21.12.2009
born i hring Frestur til að skila inn umsókn um styrk í þróunarsjóð innflytjendamála rennur út 15. janúar næstkomandi.


Fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafni|21.12.2009
bbs Þriðjudaga kl. 10:30-11:30 Borgarbókasafn - Gerðubergssafn, Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík Fimmtudaga kl. 10:30-11:30 Borgarbókasafn – Grófarhús, Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík


Fræðslufundur um foreldrasamstarf|25.09.2009
veggspjald Fræðslufundur um foreldrasamstarf með áherslu á foreldra með annað móðurmál en íslensku verður haldinn í Salnum, Fríkirkjuvegi 1. Þriðjudaginn 29. september frá kl. 8:30-11:00. Þar verður sagt frá spennandi verkefnum sem verið er að vinna í leikskólum í samvinnu við foreldra.


Alþjóðlegir foreldramorgnar í Gerðubergi þriðjudaga kl. 10:00|15.06.2009
Alþjóðlegu foreldramorgnarnir hjá Alþjóðahúsi í Breiðholti eru í fullum gangi. Þeir eru á þriðjudagsmorgnum kl. 10.00 og haldnir í Gerðubergi. Þar hittast foreldrar með börnin sín, drekka te og spjalla um allt á milli himins og jarðar. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir, innfæddir og innflytjendur. Það er alltaf gaman að fá fleiri í hópinn!


Samtrúarleg friðarstund|28.05.2009
Biskup Íslands býður til samtrúarlegrar friðarstundar í Hallgrímskirkju í tilefni af heimsókn Dalai Lama. Fulltrúar kristinna kirkna og annarra trúarbragða lesa texta úr helgiritum. Dalai Lama flytur stutt ávarp. Mótettukórinn syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Friðarstundin hefst kl. 15 mánudaginn 1. júní og er öllum opin.


Málstofa um hlutverk fjölmiðla|28.05.2009
Málstofa um fjölmiðla og innflytjendur verður haldin föstudaginn 29. maí kl. 15-17 í Gimli, Háskóla Íslands, stofu 102. Fjallað verður um hvað fjölmiðlar geta lagt af mörkum til að bæta félagslega aðlögun innflytjenda og auka fjölmenningarlegar umræður í samfélaginu. Fjölmiðlafræði og MA-nám í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands standa fyrir málstofunni.


Sumarnámskeið Ísbrúar 2009|15.05.2009
Sumarnámskeið Ísbrúar 2009 verður haldið 6. og 7. ágúst frá 9:00-16:00 í Skeifunni 8. Námskeiðið fjallar um millimenningarfærni, ólíkar matsaðferðir, aðlögun kennsluefnis og margt fleira. Sjá nánari dagskrá.


Fjölmenningardagurinn í Reykjavík|15.05.2009
16. maí næstkomandi frá kl. 13:00-17:00 verður haldinn fjölmenningardagur í Reykjavík en það eru Reykjavíkurborg og Alþjóðahús sem standa fyrir deginum.


EECERA ráðstefna í Strasbourg 26-29. ágúst 2009|20.04.2009
19. EECERA ráðstefnan verður haldin í Strasbourg í ágúst næstkomandi. Að þessu sinni verður sjónum beint að fjölmenningu í námi ungra barna.


Pólsk menningarvika dagana 27.apríl - 3. maí|20.04.2009
Í tengslum við pólska menningarviku verða sýndar pólskar teiknimyndir í ráðstefnusal Grand Hótel mánudaginn 27. apríl. Elstu börnin í leikskólunum eru boðin hjartanlega velkomin á sýninguna. Í fréttatilkynningu kemur fram að vonast er til þess að sem flestir komi á sýninguna og væri gott ef fjöldi barna væri skráður á netfangið: admin@reykjavik.polemb.net. Frekari upplýsingar hjá Michal Gierwatowski, gsm 844 5052.


Alþjóðlegur dagur gegn rasisma 21. mars|13.03.2009
Föstudaginn 20. mars mun Alþjóðahús bjóða upp á opið hús og fræðslu í tilefni af alþjóðlegum degi gegn rasisma. Dagskráin verður kynnt betur síðar á heimasíðu Alþjóðahúss www.ahus.is


Námskeið um millimenningarfræðslu|04.03.2009
Grænfánanum flaggað á Steinahlíð Hulda Karen Daníelsdóttir, kennsluráðgjafi á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða býður í haust og næsta vetur upp á smiðju í Intercultural Education sem þýða má sem fjölmenningarleg kennsla eða millimenningarfræðsla.


Menningarmót í leikskólum|25.03.2009
Menningarmót í leikskólum Borgarbókasafn og Kristín R. Vilhjálmsdóttir bjóða í sameiningu upp á Menningarmót fyrir leikskóla og grunnskóla en verkefnið kallast Fljúgandi teppi.


Málþingið velkomin í skólann|04.03.2009
velkomin Þann 12. nóvember verður haldið málþing undir yfirskriftinni: Velkomin í skólann! Móttaka og vinna með börnum og foreldrum af erlendum uppruna í leik- og grunnskólum. Þingið, sem er samstarfsverkefni nokkurra aðila og haldið verður á Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð,er ætlað öllum þeim sem koma að málefnum barna af erlendum uppruna í leik- og grunnskólum.


Ráðstefna um flóttafólk frá Kólombíu|04.03.2009
leikið í leikskóla Ráðstefna um vinnu þjónustumiðstöðvar Miðborgar- og Hlíða með flóttakonum og börnum þeirra frá Kólombíu verður haldin í Öskju föstudaginn 7. nóvember frá kl. 13:00-16:15. Starfsmenn á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða hafa haldið utan um daglega vinnu með flóttamönnunum og munu þeir kynna vinnu sína ásamt öðrum aðilum. Ráðstefnan er haldin af Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða í samstarfi við Rannsóknarsetur í barna- og fjölskylduvernd og Rannsóknarmiðstöð þjóðmála. Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.


Íslenska sem annað mál|04.03.2009
Mynd:íslenska sem annað mál Fimmtudaginn 4. desember verður haldinn samstarfsfundur leik- og grunnskólakennara um íslensku sem annað mál frá kl. 15:00-17:00. Kynntar verða risabækur og samlestur auk þess sem kennurum gefst kostur á að ræða saman um aðferðir og leiðir í kennslu íslensku sem annars máls.


Félagsvinur, mentor er málið|04.03.2009
Mynd: Félagsvinur Markmiðið með verkefninu Félagsvinur, mentor er málið er að byggja upp stuðningsnet fyrir konur af erlendum uppruna í íslensku samfélagi til þess að styrkja þær og efla og veita þeim félagslega hvatningu. Hugmyndafræði verkefnisins Félagsvinur, mentor er málið, er að danskri fyrirmynd en Rauði kross Íslands og Allar heimsins konur eru umsjónaraðilar þess. Næsta námskeið verður haldið þann 3. mars kl 18. hjá Rauða krossinum í Garðabæ og eru allir áhugasamir hvattir til þess að skrá sig til leiks. Verkefnið var kynnt fyrir leikskólastjórum í Reykjavík en með því vill Leikskólasvið hvetja leikskóla til þátttöku í því.


Íslenska sem annað mál|04.03.2009
Mynd: íslenska sem annað má Fræðslufundur um íslensku sem annað mál verður haldinn í salnum Fríkirkjuvegi 1 fimmtudaginn 12. Febrúar n.k. frá kl. 8:30-10:30


Hugmyndamarkaður|04.03.2009
Samstarfshópurinn Allar heimsins konur stendur að hugmyndamarkaði þann 6. mars n.k. í sal Leikskóla- og Menntasviðs. Markaðurinn stendur frá klukkan 13:00-16:00