06.02.2012
Heimsdagur barna í Gerðubergi
Heimsdagur barna fer fram í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi 11. febrúar næstkomandi kl. 13-17. Á Heimsdeginum býðst börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í fjölbreyttum listsmiðjum og öðrum uppákomum. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Dagskránna má finna á heimasíðu Gerðubergs www.gerduberg.is á sjö tungumálum auk íslensku (ensku, spænsku, albönsku, tælensku, litháísku, pólsku og rússnesku).
Það væri okkur kærkomið ef þú sæir þér fært að finna viðeigandi tungumál og dreifa á póstlista. Tilgangur okkar er að ná til sem flestra af erlendum uppruna.
Umfjöllun um Heimsdaginn á heimasíðu Gerðubergs má finna hér.
Dagskránna á pdf-formi á eftirfarandi málum má nálgast beint hér:
Íslenska / Icelandic
Enska / English
Spænska - Día mundial del niño
Albanska - Dita ndërkombëtare e fëmijëve
Tælenska -
Litháísku - Pasaulio Vaikų Diena
Pólska - Światowy Dzień Dziecka
Rússneska - Детский праздник «Вокруг света»