Enn betri Reykjavík
Sameinaðir hafa verið í einn sjóð „Forvarna- og framfarasjóður Reykjavíkurborgar, Forvarnarsjóður Reykjavíkurborgar og Silfursjóður Reykjavíkur“. Nýi sjóðurinn ber nafnið „Forvarnarsjóður Reykjavíkur“ og er hlutverk hans að stuðla að forvörnum og efla félagsauð og annað sem er til fyrirmyndar í hverfum borgarinnar.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum tvisvar á ári og verður næst auglýst í febrúar 2012. Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/forvarnarsjodur.
Tillaga um forvarna- og framfarasjóð Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarráði 29. nóvember 2007. Markmið með stofnun sjóðsins er að stuðla að árangri í forvarnastarfi, eflingu félagsauðs, auknu öryggi íbúa og bættri umgengni í borginni. Ennfremur er það verkefni sjóðsins að gefa einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum tækifæri til frumkvæðis og nýsköpunar á sviði forvarna og framfara í samstarfi við fagsvið Reykjavíkurborgar og þjónustumiðstöðvar velferðarsviðs. Hér má nálgast greinargerð um ráðstöfun styrkfjár Forvarna- og framfarasjóðs.