Ungmennaráð Breiðholts

ung.breidholt@itr.is

Haustið 2001 voru sett á laggirnar ungmennaráð í öllum hverfum Reykjavíkurborgar að tilstuðlan Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Í dag starfa 8 ungmennaráð í jafnmörgum hverfum borgarinnar. Starfstími hvers ráðs eitt ár í senn og hefst starfsárið 1. október ár hvert. Ungmennaráðin hafa svo með sér samráðs-og samstarfsvettvang, Reykjavíkurráð ungmenna.

Tilgangur:
• Að þeir sem eru yngri en 18 ára geti fengið að taka þátt í lýðræðinu í landi okkar, þó að þeir séu ekki með kosningarétt.
• Hver og einn hafi eitthvað um sitt eigið líf að segja og fái þar með ábyrgð á sjálfum sér.

Skipurit:
• Nemendaráð hvers skóla kjósi sér tvo fulltrúa til að starfa í ungmennaráði viðkomandi hverfis.
• Ungmennaráð hvers hverfis kýs sér tvo fulltrúa í Reykjavíkurráð, sem mun halda einn fund á hvorri önn í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Markmið:
• Að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleyft að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila.
• Að veita þátttakendum fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum.  Vottað með viðurkenningarskjali.

Tilgangur verkefnisins er tvíþættur:

Að veita þátttakendum fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum. Verður sá hluti verkefnisins vottaður með viðurkenningarskjali í lok vetrar.

Að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem yngri eru en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila.

Það er gert í samstarfi við Íþrótta- og tómstundaráð og með stofnun Reykjavíkurráðs ungmenna er vonast eftir frekari umfjöllun borgaryfirvalda um málefni ungs fólks.

Starfað er eftir ákvæðum barnasáttmála sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórn Íslands hefur undirritað. Einnig hefur þetta sterka tilvísun í þá stefnumótun sem átt hefur sér stað hjá Evrópusambandinu m.a. með tilkomu “Hvítu skýrslunnar” frá hausti 2001.

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is