Heimaþjónusta Reykjavíkur
Þann 30. desember 2008 skrifuðu borgarstjóri og heilbrigðisráðherra undir þjónustusamning þar sem Reykjavíkurborg tekur að sér frá og með 1.janúar 2009 að reka heimahjúkrun í Reykjavík og sameina hana rekstri félagslegrar heimaþjónustu í Reykjavík í þjónustukerfi sem myndar samhæfða heild gagnvart notanda. Verkefnið er tilraunaverkefni til þriggja ára.
Í tilefni af yfirfærslu heimahjúkrunar til borgarinnar var stofnuð ný skipulagseining undir Velferðarsviði undir heitinu Heimaþjónusta Reykjavíkur
Hlutverk Heimaþjónustu Reykjavíkur er að veita heimahjúkrun allan sólarhringinn í Reykjavík og Seltjarnarnesi, kvöld og næturheimahjúkrun í Mosfellsbæ og næturheimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.
Kvöld- og helgarþjónusta félagslegrar heimaþjónustu verður rekin frá Heimaþjónustu Reykjavíkur frá 1. mars 2009. Jafnframt mun Heimaþjónusta Reykjavíkur leiða samvinnu dagþjónustu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu en dagþjónusta félagslegrar heimaþjónustu verður áfram veitt hverfabundið frá þjónustumiðstöðvum borgarinnar.
Heimaþjónusta Reykjavíkur er til húsa að Álfabakka 16, 109 Reykjavík.Sími er 411 9600, faxnr: 411 9699, netfang: heimathjonusta@reykjavik.is
Forstöðumaður Heimaþjónustu Reykjavíkur er Berglind Magnúsdóttir og hefur hún störf þann 21. janúar 2009.

Fréttir
15.01.2009
Kynningarfundir fyrir starfsfólk heimahjúkrunar
Þriðjudaginn 13. jan og fimmtudaginn 15. jan kl. 13:30-15:30 voru starfsmenn heimahjúkrunar boðnir velkomnir til starfa hjá Velferðarsviði og jafnframt var kynnt fyrir þeim umfang og hlutverk sviðsins. Fundirnir voru haldnir á 7. hæð í Höfðatorgi.
Kynningaglærur af fundinum má sjá með því að smella á fyrirsögn fréttarinnar.
21.01.2009
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heimahjúkrun fyrir Reykjavík og Seltjarnarnes er veitt af Miðstöð heimahjúkrunar sem nú er rekin af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
12.01.2009
Pistill frá sviðsstjóra Velferðarsviðs
Stella Kr. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sendi upplýsingapistil um þjónustusamninginn á starfsfólk sviðsns í byrjun árs 2009 og er hann birtur hér.
12.01.2009
Fréttatilkynning í kjölfar undirritunar þjónustusamnings
Borgarstjóri og heilbrigðisráðherra skrifuðu undir þjónustusamninginn miðvikudaginn 31. desember 2008 í Listasafninu við Tryggvagötu. Hér má sjá fréttatilkynningu þess efnis.
12.01.2009
Grein eftir Jórunni Frímannsdóttir, formann Velferðarráðs Reykjavíkurborgar
Greinin ber yfirskriftina Nýir tímar í heimaþjónustu og þar skrifar Jórunn um undirritun þjónustusamnings um heimahjúkrun. Greinin birtist í Morgunblaðinu mánudaginn 5. janúar sl.

Fyrirspurn sem barst á síðuna 20. nóv 2008
Spurning:
Komið hafa fram áhyggjur af því að verkefnum verði varpað á heimahj. t.d. ef mannskapur ekki til staðar í félþj. (meira hefur verið lagt upp úr því að redda mönnun í heimahj.). Hvernig verður áherslan á þessi mál?
Svar:
Lagt verður upp með það í verkefninu að fara vel yfir fræðslu og þjálfun starfsfólks í sameinaðri þjónustu og nýta það sem þegar er vel gert en jafnframt að bæta úr þar sem úrbóta er þörf. Gerð verður fræðsluáætlun í tengslum við sameiningarverkefnið og við mótun hennar verður leitað eftir áliti hjá starfsfólki.
Jafnframt gerum við okkur vonir um að starfsfólk félagslegrar heimaþjónustu muni njóta góðs af þekkingu og reynslu samstarfsfólks síns frá heimahjúkrun sem bæði getur leiðbeint þeim og gefið góð ráð og að í sumum tilvikum geti það einnig orðið á hinn veginn, þ.e. að reynsla og þekking starfsfólks í félagslegri heimaþjónustu geti nýst starfsmönnum heimahjúkrunar.
Varðandi mönnun í félagslegri heimaþjónustu þá hefur mikið verið lagt upp úr að fá fólk til starfa en því miður ekki alltaf náðst nægur árangur í þeim efnum. Nú hefur verið auðvelt að fá gott fólk til starfa og lagt verður upp með að efla það starfsfólk sem bæði er að störfum sem og það sem ræðst nýtt inn. Vonandi með þeim árangri að fólk haldist ánægt í starfi.
Af fundi Þorsteins Hjartarsonar með starfsfólki í Árskógum