Fréttir

09.12.2008

Nýjar fréttir af sameiningarferlinu

Í ljósi sameiningu félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar hefur stjórnskipulagi félagslegrar heimaþjónustu verið breytt og var nýtt skipurit Velferðarsviðs samþykkt í borgarráði þann 16. október 2008.  Við breytingar á skipulagi heimaþjónustu á Velferðarsviði ,sem munu taka gildi frá og með 1.mars 2009, verða störf deildarstjóra í heimaþjónustu lögð niður en um leið verða ný störf teymisstjóra til og ber að líta svo á að um uppfærslu innan starfsgreinarinnar eða á hliðstæðum starfsgreinum sé að ræða. Gert er ráð fyrir að umsóknarferli um störf teymisstjóra verði lokið þann 15. desember 2008. Teymi í félagslegri heimaþjónustu verða 12 talsins ef frá eru taldir þjónustuíbúðakjarnar.

Einnig hefur verið tekin sú ákvörðun að Heimaþjónusta Reykjavíkur verði til húsa að Álfabakka 16, Breiðholti (Mjóddin). 



Sendu inn þínar vangaveltur
Upplýsingar um stýrihópa
heimahjukrun