Fréttir
12.01.2009
Fréttatilkynning í kjölfar undirritunar þjónustusamnings
Reykjavíkurborg tekur við heimahjúkrun af ríkinu
Bætt þjónusta og betri yfirsýn með sameiningu við félagslega heimaþjónustu
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag samning um að flytja rekstur Miðstöðvar heimahjúkrunar höfuðborgarsvæðisins frá ríkinu til borgarinnar.
Með þjónustusamningnum hefst tilraunaverkefni til þriggja ára sem felst í að reka heimahjúkrun og sameina hana rekstri félagslegrar heimaþjónustu í Reykjavík. Þannig verður til þjónustukerfi, sem myndar eina heild gagnvart notanda og er markmiðið að gera fleiri íbúum kleift að búa heima þrátt fyrir veikindi og skerta getu til daglegra athafna. Með því að sameina og samþætta starfsemina er stefnt að því ná fram bættri nýtingu mannafla og fjármuna.
Samningurinn er til þriggja ára og gildir frá 1. janúar 2009 til 31. desember 2011 og greiðir ríkið alls rúmlega 2,8 milljarða króna fyrir þjónustu Reykjavíkurborgar á samningstímanum. Samkvæmt ákvæðum þjónustusamningsins sér Reykjavíkurborg um rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík allan sólarhringinn alla daga ársins. Þar fyrir utan tekur samningurinn til reksturs heimahjúkrunar allan sólarhringinn alla daga ársins í Seltjarnarnesbæ, reksturs kvöld, - nætur og helgidagaþjónustu heimahjúkrunar í Mosfellsbæ og rekstur næturþjónustu heimahjúkrunar í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.
Heimahjúkrun fá einstaklingar sem búa í sveitarfélögunum sem hér eru nefnd eða dvelja um lengri eða skemmri tíma í heimahúsi á svæðinu, t.d. í tengslum við dvöl á sjúkrahúsi eða endurhæfingu, og þurfa á heimahjúkrun að halda að mati læknis eða hjúkrunarfræðings.
Tæplega 2200 sjúklingar á svæðinu munu njóta þjónustunnar sem hér um ræðir, en árlegar vitjandi sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga eru rúmlega 156 þúsund. Ársverkin eru rúmlega níutíu. Um 87% beiðna um heimahjúkrun koma frá Landspítala, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Landakoti.