Fréttir

12.01.2009

Pistill frá sviðsstjóra Velferðarsviðs

Þann 30. desember s.l. skrifuðu borgarstjóri og heilbrigðisráðherra undir þjónustusamning þar sem Reykjavíkurborg tekur að sér frá og með 1.janúar 2009 að reka heimahjúkrun í Reykjavík og sameina hana rekstri félagslegrar heimaþjónustu í Reykjavík í þjónustukerfi sem myndar samhæfða heild gagnvart notanda. Verkefnið er tilraunaverkefni til þriggja ára.

Verkefnið nær einnig til reksturs heimahjúkrunar á Seltjarnarnesi allan sólarhringinn, kvöld og næturþjónustu í Mosfellsbæ og næturþjónustu í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.

Þjónustusamningurinn var samþykktur í borgarráði 5. janúar s.l.

Í október s.l. voru samþykktar í velferðarráði og borgarráði þær breytingar á skipuriti Velferðarsviðs að ný skipulagseining verður til sem heyrir beint undir sviðsstjóra - Heimaþjónusta Reykjavíkur.

Berglind Magnúsdóttir, öldrunarsálfræðingur hefur verið ráðin yfirmaður Heimaþjónustu Reykjavíkur og kemur hún til starfa 20. janúar n.k. , Berglind verður staðsett á Miðstöð heimahjúkrunar í Mjódd.

Með heimahjúkrun flytja 115 starfsmenn frá ríkinu til Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, um 1000 heimili njóta heimahjúkrunar að jafnaði.

Með kveðju,
Stella Kr. Víðisdóttir, sviðsstjóri



Sendu inn þínar vangaveltur
Upplýsingar um stýrihópa
heimahjukrun