Fréttir
21.01.2009
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heimahjúkrun fyrir Reykjavík og Seltjarnarnes er veitt af Miðstöð heimahjúkrunar sem nú er rekin af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Starfsemin var flutt frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til Velferðarsviðsins 1. jánúar 2009 og er um 3 ára tilraunaverkefni að ræða.Heimahjúkrun í Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði er sinnt frá heilsugæslustöðvum í viðkomandi bæjum en
Miðstöðin sinnir næturþjónustu í þessum bæjum og einnig kvöldþjónustu í Mosfellsumdæmi.
Á miðstöðinnni er veitt hefðbundin heimahjúkrun og heimageðhjúkrun.
Markmiðið er að gera þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest.
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið heimahjukrun@hhjuk.hg.is eða hringja í síma 513-1300. Miðstöð heimahjúkrunar er til húsa að Álfabakka 16, 109 Reykjavík.