09.12.2008

Af fundi Þorsteins Hjartarsonar með starfsfólki í Árskógum

Þorsteinn Hjartarson, frkv.stjóri þjónustumiðstöðvar Breiðholts sat fund með starfsfólki í Árskógum þann 17. nóvember sl. og fékk að heyra af spurningum og vangaveltum þeirra.  Á fundinum kom m.a. fram að í Breiðholti verða 2 teymisstjórar í heimaþjónustu skv. nýja fyrirkomulaginu sem gildi tekur þann 1. mars á næsta ári og að heimahjúkrun yrði miðlæg fyrst um sinn en það gæti mögulegast þróast í samstarfi við notendur og starfsfólk.

Fram kom að ekki verði sérstaklega samið við starfsfólk vegna nýrra starfslýsinga heldur sé um að ræða samkomulag milli ríkis og borgar og ákvörðun borgaryfirvalda um mögulega breytingu á fyrirkomulagi.  Nauðynlegt gæti reynst að ræða við starfsfólk um skörun verksviða fagstétta og nýjar starfslýsingar stétta. 

Einnig kom fram að með nýju skipulagi og tilkomu teymisstjóra ættu samskipti og samstarf að aukast og batna og skipulag að verða markvissara.



Sendu inn þínar vangaveltur
Upplýsingar um stýrihópa
heimahjukrun