PBS


Hugmyndir að verðlaunum fyrir einstaka nemendur

  • Aðstoð við kennslu yngri barna
  • Aðstoða í eldhúsi
  • Aðstoða starfsmenn skóla, s.s. skólaliða, smíðakennara, húsvörð
  • Afsláttur á heimanám
  • Auka kennslustund t.d. smíði eða íþróttir
  • Barmmerki með viðurkenningu
  • Biðja skólastjórnanda að kalla í nemanda til að hrósa
  • Bjóða bekk poppkorn eða snakk
  • Borða á kennarastofu
  • Búa til leikrit
  • Fara í heimsókn á kennarastofu
  • Fara í tölvu
  • Fara í valkrók
  • Fara fyrr út úr tíma
  • Sitja í sæti kennarans
  • Flytja kennslu út úr húsi
  • Foreldrakvöld
  • Frjáls tími
  • Frjáls tími fyrir allan bekkinn
  • Fyrstur í röð
  • Föndurtími
  • Gönguferð
  • Hlusta á tónlist
  • Horfa á spólu með bekk
  • Hringja heim til að segja frá að allt gangi vel (t.d. fyrir framan nemanda)
  • Hrósa nemanda yfir bekkinn
  • Hrósmiði 
  • Kríta á töflu
  • Lána nemanda e-ð sérstakt
  • Láta bekkinn klappa fyrir sér
  • Lesa sögu fyrir bekkinn
  • Límmiðar/stimplar
  • Mála
  • Púsla
  • Segja bekknum brandara
  • Sendur til skólastjóra með hrósmiða
  • SMS/tölvupóst í foreldra og hrósa
  • Stjórna leik
  • Stimplar
  • Sætabrauðsdagur fyrir bekkinn
  • Tefla/spila
  • Teikna á töfluna
  • Teikna stjörnu á handarbak nemanda
  • Útitími með kennara
  • Velja bók til að lesa
  • Velja leik eða spil fyrir bekk
  • Velja röð verkefna
  • Velja sér félaga til að læra með/spila við/fara með á bókasafn
  • Velja sér sæti
  • Velja sér sætisfélaga
  • Velja þema í kennslustund/dag (allt afturábak, andstæður, kvikmynd, annað)
  • Vera í skemmtinefnd
  • Vera umsjónarmaður
  • Viðurkenningarskjal
  • Vinna á eftirsóttum stað
  • Fá að gera við hluti í stofunni