Að viðhalda hegðun
Þegar reglur hafa verið kenndar öllum nemendum þarf að nýta ýmsar leiðir til að viðhalda nýrri færni, bæta við færni og hámarka æskilega hegðun innan skólans. Ekki er nóg að kenna reglurnar heldur þarf að fylgja þeim eftir með hvatningu og ýmsum áminningum. Mikilvægt er að starfsfólk sé samtaka og deili góðum hugmyndum sem nýtast vel.
Jákvæð styrking
Mikilvægt er að veita æskilegri hegðun mikla og jákvæða athygli þegar ýta á undir og viðhalda slíkri hegðun. Þegar afleiðingar hegðunar auka tíðni hennar kallast það styrking (e. reinforcement). Þessar afleiðingar eða áreiti kallast á tæknimáli styrkjar (e. reinforcers) en það hugtak nær í flestum tilfellum yfir það sem við sækjumst eftir að fá, s.s. hlýja, athygli.
Umbun er hægt að flokka í tvo flokka – félagslega og efnislega. Félagsleg umbun felur í sér hrós, athygli, áhuga og tíma annarra. Dæmi um efnislega umbun er límmiðar, leikir, sparimatur, tími með fullorðnum. Þó svo að efnisleg umbun sé notuð skal félagsleg umbun alltaf fylgja með þar sem slíkt eykur sjálfstraust og öryggi barna.
Félagsleg umbun - hrós
Áhrifaríkasta og einfaldasta leiðin til að viðhalda og bæta við færni er að hrósa, sýna nemendum velvild og athygli þegar vel gengur. Ýmsar leiðir er hægt að fara til að sýna athygli s.s. blikk, bros, þumall, létt snerting. Þegar nemanda er hrósað er mikilvægt að hann viti fyrir hvaða hegðun er verið að hrósa honum fyrir og þarf hrós því að vera nákvæmt. Dæmi um slíkt hrós er "gott hjá þér að halda áfram að vinna og láta ekkert trufla þig", "takk fyrir að ganga svona vel frá borðinu þínu, ég kann að meta það". Athuga þarf að hrósa fyrir viðleitni, hegðun sem er í átt að því sem við viljum sjá.
Efnisleg umbun - hvatningakerfi
Eins og með félagslega umbun þarf að skilyrða efnislega umbun við ákveðna hegðun. Umbun er ekki veitt nema ákveðin hegðun hafi verið sýnd og afar mikilvægt er að nemandi viti af hverju hann fær þessa umbun, þ.e. skýrt hrós þarf að fylgja með. Efnislega umbun hefur mikið vægi þegar verið er að ná tökum á nýrri færni.
Hrósmerki
Hvatningakerfi í PBS nær yfir allan skólann og er því fyrir alla nemendur. Í PBS er notað svokallað táknkerfi, þ.e. efnisleg umbun í formi hrósmerkja (korta, smella, mola) sem hægt er að skipta út fyrir umbun. Allir starfsmenn bera á sér hrósmerki. Þegar starfsmanni finnst nemandi eiga skilið hrós vegna góðrar hegðunar hrósar hann honum á nákvæman hátt og getur gefið honum hrósmerki. Athuga þarf að gefa hrósmerki á ófyrirsjáanlegan hátt. Nemendur mega fara með hrósmerki heim til að sýna foreldrum og fá þannig athygli og hrós heima við líka - sem aftur styrkir jákvæða hegðun í skólanum. Hrósmerkjum er síðan safnað saman í bekknum og þar er haldið utan um talningu og annað. Afar brýnt er að nemandi viti alltaf af hverju hann fær hrósmerki, þ.e. fyrir hvaða hegðun.
Umbun valin fyrir hópa/bekki
Í upphafi skólaárs er haldinn fundur í hverjum bekk þar sem möguleg umbun er valin. Gott er að nýta bekkjarfundi til þess. Umsjónarkennari segir nemendum sínum frá því hvað standi til og biður um hugmyndir. Allar hugmyndir eru skrifaðar á töfluna og síðan eru nokkrar hugmyndir valdar úr sem dregið er úr út þegar að umbun kemur. PBS teymi skóla gefur út viðmið í sambandi við hversu mörg hrósmerki þarf til að umbun fáist, kostnað við umbun og annað sem máli skiptir. Viðmið um fjölda er oft 10 - 15 hrósmerki að meðaltali á hvern nemanda. Hver bekkur safnar hrósmerkjum saman og eru ýmsar leiðir til að halda utan um talninguna.