Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Búsetuþjónusta fyrir geðfatlaða

Velferðarsvið Reykjavíkur eru með þjónustusamning um Búsetuþjónustu geðfatlaðra sem kveður á um að velferðarsvið hafi umsjón með 3 íbúðum, íbúðakjörnum með 20 rýmum auk stuðningsþjónustu til 6 geðfatlaðra einstaklinga sem búa sjálfstætt. Þjónustan er einstaklingsbundin og sveigjanleg og miðar að því að rjúfa einangrun og hvetja til félagslegrar virkni. Sótt er um búsetuþjónustu fyrir geðfatlaða á þjónustumiðstöð í því hverfi þar sem umsækjandi býr.

Samstarf er milli velferðarsviðs og Landspítala – háskólasjúkrahúss um rekstur 11 verndaðra heimila fyrir geðfatlaða. Á hverju heimili búa 2 - 5 einstaklingar, 38 íbúar alls. Markmiðið er að rjúfa einangrun, hvetja til félagslegrar virkni og koma í veg fyrir endurinnlagnir. Félagsráðgjafar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi hafa faglega umsjón með endurhæfingu. Íbúarnir fá félagslega heimaþjónustu sem sniðin er að þörfum þeirra. Einnig eiga þeir möguleika á liðveislu og frekari liðveislu.


Ferill umsóknar/þjónustu


Hvað kostar þjónustan


Fyrirspurnir og/eða ábendingar