Tilsjónarmenn og persónulegur ráðgjafi
Tilsjónarmaður styður fjölskylduna en veitir fyrst og fremst aðstoð til foreldra við að sinna forsjár- og uppeldisskyldum sínum svo sem best hentar hag og þörfum barns.
Persónulegur ráðgjafi tekur að sér stuðningshlutverk við barn eða ungling. Með persónulegum ráðgjafa er átt við einstakling sem veitir barni ráðgjöf og leiðbeiningar í þeim tilgangi að styrkja það félagslega og tilfinningalega svo sem í sambandi við tómstundir, menntun og vinnu. Samband persónulegs ráðgjafa og barns byggist á gagnkvæmu trausti og vinsemd.