Ef tilkynnt er um mitt barn?
Tilkynning til barnaverndaryfirvalda er ekki kæra heldur beiðni um aðstoð fyrir viðkomandi barn/fjölskyldu, sem tilkynnandi telur hjálparþurfi.
Samkvæmt barnaverndarlögum er foreldrum eða þeim sem barnið dvelst hjá skylt að veita liðsinni sitt til að könnun málsins geti gengið greiðlega fyrir sig, enda skulu starfsmenn nefndarinnar sýna þeim er málið snertir alla nærgætni. Könnunin skal ekki vera umfangsmeiri en þörf krefur. Sjálfsagt er að spyrja starfsmenn um rétt foreldra og gang könnunar enda ber starfsmönnum að leiðbeina foreldrum og barni um rétt þeirra. Um heimildir og skyldur starfsmanna við könnun máls er fjallað í 22. gr. og VIII. kafla grein barnaverndarlaga. Rétt er að hafa í huga að í langflestum barnaverndarmálum eru foreldrar og starfsmenn sammála um að leita þeirra leiða sem bestar eru fyrir barnið.
Hvað er gert í barnaverndarmálum?
Þegar barnaverndarnefnd fær tilkynningu eða berast upplýsingar með öðrum hætti um að líkamlegri eða andlegri heilsu barns eða þroski geti verið hætta búin, skal hún taka afstöðu til þess án tafar og eigi síðar en innan sjö daga frá því að henni barst tilkynning eða upplýsingar, hvort ástæða sé til að hefja könnun á málinu.
Lögð er áhersla á að fá ítarlegar upplýsingar um tilefni tilkynninga í upphafi. Tilkynning þarf að vera trúverðug og vel rökstudd. Starfsmenn barnaverndarnefndar taka ákvörðun um hvort tilefni sé til að hefja könnun máls. Foreldrar eru ávallt látnir vita að tilkynning hafi borist og hvaða ákvörðun hafi verið tekin í framhaldinu.
Ef tilefni tilkynningar felur í sér þörf á frekari athugun á aðstæðum barns er gerður samningur við foreldra um könnun máls. Könnun máls skal að öllu jöfnu ekki vara lengur en í þrjá mánuði og er þess gætt að könnunin sé ekki umfangsmeiri en þörf krefur en markmið hennar er að afla sem gleggstra upplýsinga um hagi og aðstæður barnsins.
Upplýsinga er leitað eftir atvikum hjá ungbarnaeftirliti, á leikskóla, í skóla, hjá ættingjum, barninu sjálfu o.s.frv. Lögð er rík áhersla á viðtöl við börn en slík viðtöl eru að öllu jöfnu háð samþykki foreldra.
Framvinda málsins veltur síðan á því hvað upplýsingaöflun hefur leitt í ljós. Ef ekki þykir ástæða til frekari afskipta á grundvelli barnaverndarlaga er málinu lokað með formlegu bréfi til foreldra/forráðamanns. Þegar þörf er á áframhaldandi aðstoð starfsmanna Barnaverndar Reykjavíkur er í samstarfi við foreldra eða forráðamann gerð meðferðaráætlun með tilheyrandi stuðningsúrræðum eftir því hvernig málum er háttað.
Stuðningur getur m.a. falið í sér viðtöl, eftirlit, umsóknir um stuðningsúrræði og eftirfylgd í málinu.