Tilkynningar og bakvaktir
Tilkynningaskylda:
Í 16. gr. barnaverndarlaga segir: "Hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu er skylt að tilkynna það barnaverndarnefnd. Annars er hverjum manni rétt að gera barnaverndarnefnd viðvart um hvert það tilvik sem telja má að hún eigi að láta sig varða."
Atriði sem hafa þarf í huga þegar meta skal hvort tilkynna skuli um aðstæður barns/unglings til barnaverndar:
· Líkamleg og andleg vanræksla
· Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi
· Ung börn eru skilin eftir gæslulaus eða í umsjá annarra barna
· Eldri börn skilin eftir langtímum saman og þurfa að sjá um sig sjálf
· Léleg skólasókn, skólaskyldu ekki sinnt
· Afbrot, árásargirni
· Heilsugæslu ekki sinnt þótt um vanheilsu sé að ræða
· Há tíðni smáslysa sem hægt hefði verið að fyrirbyggja
· Endurteknir áverkar sem barn á erfitt með að útskýra
· Vannæring
· Lélegur fatnaður sem hentar illa aðstæðum
· Vímuefnaneysla foreldra
Atriði sem sérstaklega þarf að hafa í huga vegna unglinga:
· Áfengis-og vímuefnaneysla
· Léleg skólasókn
· Endurtekin afbrot
· Ofbeldishegðun
· Þunglyndi, geðröskun, sjálfsvígshugleiðingar
Hver tekur á móti barnaverndartilkynningum?
Starfsfólk Barnaverndar Reykjavíkur veitir upplýsingar og tekur við tilkynningum í síma 535-2600 á dagvinnutíma.
Utan dagvinnutíma (frá kl. 16.15 síðdegis til kl. 08.00 að morgni), um helgar (frá kl. 16.15 á föstudögum til kl. 08.00 á mánudagsmorgnum) og á helgidögum þegar skrifstofan er lokuð sinnir bakvakt bráðatilvikum vegna barnaverndarmála í síma 112. Starfsmenn 1 1 2 greina þau erindi sem berast neyðarþjónustunni og í þeim tilfellum þar sem nauðsynlegt er að grípa strax til aðgerða vegna aðstæðna barns/unglings er erindinu þegar vísað á starfsmann Barnaverndar Reykjavíkur.
Nafnleynd:
Í barnaverndarlögunum er fjallað um nafnleynd tilkynnanda. Hinn almenni tilkynnandi, ættingjar eða aðrir nákomnir, geta óskað nafnleyndar gagnvart öðrum en barnaverndarnefnd, en opinberir aðilar s.s. starfsfólk skóla, leikskóla, spítala, heilsugæslu, starfsfólk annarra félagsmálastofnana eða barnaverndarnefnda o.s.frv. getur ekki tilkynnt undir nafnleynd.