Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts

Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Árbæjar og Grafarholts
Hraunbæ 115
110 Reykjavík
sími: 411-1200
fax: 411 1299
netfang: arbaer-grafarholt@reykjavik.is
http://www.arbaer.is

Opnunartími þjónustumiðstöðvarinnar er alla virka daga frá 8:30 til 16:00

Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts er ein af sex þjónustumiðstöðvum í Reykjavík. Framkvæmdastjóri er Sólveig Reynisdóttir.

Á þjónustumiðstöðinni eru veittar upplýsingar um þjónustu Reykjavíkurborgar og þar er hægt að sækja um ýmis úrræði sem sem Reykjavíkurborg býður upp. Má þar nefna liðveislu, tilsjón, stuðningsfjölskyldur, unglingasmiðjur, heimsendingu matar, hvíldarinnlagnir og fleira.  Hægt er að skila öllum umsóknum um þjónustu borgarinnar til þjónustumiðstöðvarinnar sem ber ábyrgð á því að koma þeim í réttar hendur innan borgarkerfisins.

Meðal þjónustu sem veitt er á Þjónustumiðstöðinni má nefna:

- Akstursþjónusta fyrir eldri borgara
- Ferðaþjónusta fatlaðra
- Félagsleg ráðgjöf
- Fjárhagsaðstoð
- Húsaleigubætur
- Heimaþjónusta
- Sérfræðiþjónusta við leik- og grunnskóla
- Umsóknir um leiguhúsnæði

Til að auðga mannlíf og menningu í hverfum borgarinnar leggur starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar áherslu á að styrkja hvers kyns hverfastarf og forvarnarstarf í samvinnu við íbúa, félagasamtök og aðra þá sem vilja láta til sín taka. Stuðningur getur verið í ýmsu formi, svo sem með þátttöku starfsmanna og nýtingu húsnæðis þjónustumiðstöðvarinnar, þ.m.t. salirnir í Hraunbæ 105 og að Þórðarsveig 3  

Starfsstöðvar eru tvær:

  • Hraunbær 105, félagsmiðstöð
  • Þórðarsveigur 1-5, félagsmiðstöð

 

Aðrar starfsstöðvar sem heyra undir þjónustumiðstöðina eru;

  • Hraunbær 107, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Þórðarsveigur 1-5, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Móvað 9, heimili fyrir börn
  • Mýraás 2, sambýli
  • Lækjarás 8, sambýli
  • Þorláksgeisli 70, sambýli
  • Bröndukvísl 17, sambýli