Þjónustumiðstöð Breiðholts
Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Breiðholts
Álfabakka 115
109 Reykjavík
sími: 411-1300
fax: 411 1300
netfang: breidholt@reykjavik.is
http://www.breidholt.is
Opnunartími þjónustumiðstöðvarinnar er alla virka daga frá 8:30 til 16:00
Þjónustumiðstöð Breiðholts er ein af sex þjónustumiðstöðvum í Reykjavík. Framkvæmdastjóri er Þorsteinn Hjartarson.
Þjónustumiðstöðin er alhliða upplýsingaveita um þjónustu borgarinnar. Þar er hægt að sækja um ýmis konar þjónustu svo sem leikskólapláss, fjárhagsaðstoð, húsaleigubætur og heimaþjónustu. Í þjónustumiðstöðinni er veitt félagsleg ráðgjöf, sálfræði- og kennsluráðgjöf vegna leik- og grunnskólabarna, ýmis konar frítímaþjónusta og fleira.
Markmiðið með stofnun þjónustumiðstöðvanna á sínum tíma var að gera þjónustu borgarinnar aðgengilegri fyrir íbúa og efla þverfaglegt samstarf sérfræðinga í málefnum barna og fjölskyldna og auka þannig lífsgæðin í höfuðborginni. Þjónustumiðstöðvarnar leggja mikla áherslu á að styrkja hvers kyns hverfastarf í samvinnu við íbúa, félagasamtök og aðra þá sem vilja láta til sín taka.
Framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts er Þorsteinn Hjartarson og Þóra Kemp, félagsráðgjafi og deildarstjóri, er staðgengill hans. Hákon Sigursteinsson, sálfræðingur, er deildarstjóri sérfræðiþjónustu leikskóla og grunnskóla í Breiðholti.
Undir þjónustumiðstöð Breiðholts heyrir eftirfarandi starfsemi:
Aðalskrifstofa, Álfabakka 12.
Í Álfabakkanum starfa að jafnaði 40 manns í þverfaglegu samstarfi. Helstu fagstéttir eru: Félagsráðgjafar, sálfræðingar, kennsluráðgjafar,sérkennsluráðgjafar, matsfulltrúar, daggæsluráðgjafi, þjónustufulltrúar og frístundaráðgjafi.
Unglingasmiðjan Tröð, Keilufelli 5.
Stuðningsúrræði á vegum Þjónustumiðstöðvar Breiðholts og hefur starfað frá árinu 1987. Starfsemi unglingasmiðjunnar er einkum ætluð unglingum sem eiga erfitt uppdráttar félagslega af ýmsum ástæðum. Helstu markmið smiðjunnar snúa að því að efla sjálfstraust og jákvæða sjálfsmynd unglinganna, styðja þá í leit að uppbyggilegum lausnum, styrkja hópkennd og jákvæð samskipti, kenna virðingu og umburðarlyndi, auka hæfni í félagslegum samskiptum og draga úr félagslegri einangrun. Að jafnaði starfa 6 starfsmenn í hlutastarfi í Tröð. Forstöðumaður er Heiða Ösp Kristjánsdóttir.
Félagsmiðstöð Árskógum 4.
Félagsleg heimaþjónusta og félagsstarf. Félagslegri heimaþjónustu sinna um 40 starfsmenn. Skipulag og verkstjórn er í höndum tveggja teymisstjóra og hverfinu skipt í efra og neðra Breiðholt. Félagsstarf fer fram í opnum vinnustofum og með námskeiðum. Einnig er starfrækt baðþjónusta og akstursþjónusta. Starfsmenn eru að jafnaði 8.
Stuðningurinn heim, Hraunbergi 15.
Uppeldisráðgjöf heim til foreldra á vegum Þjónustumiðstöðvar Breiðholts. Forstöðumaður er Aðalbjörg Valberg.
Aðrir starfsstaðir þjónustumiðstöðvar Breiðholts eru;
- Álfabakki 12, skammtímaheimili Grettisgötu og Laugarnesvegi
- Gylfaflöt, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
- Rangársel 16-20, Þjónustukjarni
- Starengi 118, þjónustukjarni
- Trönuhólar 1, sambýli
- Hólaberg 76, sambýli
- Jöklasel 2, sambýli
- Tindasel 1, sambýli
- Skagasel 9, sambýli
- Stuðlasel 2, sambýli
Heimasíða þjónustumiðstöðvar Breiðholts